ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Það er alveg skýrt að öll slík samskipti, úr því að hv. þm. Ragnheiður E. Árnadóttir spyr mig, verða að vera opinber samkvæmt lögum. Hins vegar er munur á hvort þau eigi að vera opinber öllum eða hvort fara eigi með þau sem trúnaðarmál, en að beina þessu inn á braut einkamála eins og virðist vera, einkapósthólf embættismanns — þetta er embættismaður, ekki pólitískt kjörinn fulltrúi — er mjög alvarlegt. Þetta er starfandi embættismaður þrátt fyrir að hann hafi svo síðar hætt sem ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins og sé núna orðinn aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Við skulum alveg muna atburðarásina hvernig þetta lá allt saman á þessum tíma. Fyrir utan það er þessi tölvupóstur sendur þarna á milli um miðjan apríl og það er verið að biðja um að leyna upplýsingum fyrir kosningar.
Ég minni landsmenn á að á þessum tíma varði Framsóknarflokkurinn þessa tvo flokka falli á Alþingi. Ekki hafði Framsóknarflokkurinn hugmynd um að þetta gríðarlega leynimakk væri í gangi á þessum tíma. Ég lít það mjög alvarlegum augum hvernig þetta hefur komið fram núna og eins og ég segi, það verður að skoða þetta allt saman mjög vel.
Mig langar til að spyrja þingmanninn — þetta er bara einn hluti af þessum tölvupósti sem við erum búin að fara í gegnum núna, enda fengum við ansi mikið fóður með honum til að koma með nýjar upplýsingar inn í málin — hvað finnst þingmanninum um þær hugleiðingar sem eru annars vegar varðandi samspil Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Parísarklúbbsins í þessum tölvupósti?