138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[13:06]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er einmitt einn vinkill í þessu máli að á þeim tíma sem þessi tölvupóstssamskipti fóru fram er minnihlutastjórn í landinu, minnihlutastjórn sem hafði uppi mörg orð um það að hér skyldi allt vera uppi á borðum. Eins og hv. þingmaður Framsóknarflokksins benti á er þetta gert á þeim tíma þegar Framsóknarflokkurinn var að verja þá ríkisstjórn falli. Við getum haft allar skoðanir á því hvernig haldið hefur verið á þessum samningaviðræðum en við verðum og eigum að geta gert þá kröfu til hæstv. ráðherra að þeir standi við stóru orðin, þeir standi við þau, eins og ég las upp áðan í ræðu minni þegar hæstv. fjármálaráðherra segir 12. mars sl. að hann hafi, með leyfi forseta, „lagt ríka áherslu á það við samninganefndina að sérstaklega verði vandað til utanumhalds á öllum skjölum og öllum gögnum og bókhaldskerfi ráðuneytis notað til að tryggja að þar verði allt aðgengilegt á meðan á samningaviðræðum stendur“. Þetta gengur náttúrlega algerlega í berhögg við það.

Og það sem þetta gerir líka — hvað er meira til? Alltaf þegar ég hef velt þeirri spurningu upp í þessum ræðustól og beðið um gögn, sem ég bíð enn þá eftir — ég lagði formlega fyrirspurn fram 27. nóvember — alltaf þegar ég hef verið að biðja um þessi gögn hefur hæstv. fjármálaráðherra orðið mjög önugur og ásakað mig um að ásaka sig um alls konar hluti sem ég hef aldrei verið að gera. Ég vil bara fá þessi gögn svo ég geti lagt sjálfstætt mat á þetta. En þá setja þeir þetta allt saman inn í einhver einkapóstföng.

Ég verð að biðja þingmanninn forláts, mér var svo mikið niðri fyrir með þetta að ég geymi svarið við spurningu hennar þar til í næstu ræðu minni.