ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum þessar spurningar. Í fyrsta lagi er alveg ljóst í mínum huga af hverju þessum tölvupósti, og því sem þar kemur fram, er leynt fyrir kosningar. Það er vegna þess að þær upplýsingar sem þarna eru hefðu getað haft slæm áhrif á útkomu þeirra flokka sem þá sátu í minnihlutastjórn, Samfylkingar og Vinstri grænna. Icesave-flokkarnir hefðu getað komið illa út úr kosningum. Þess vegna var þessu leynt, þess vegna kom þetta ekki fram. Það er bara einfaldlega þannig. Það er alveg ljóst að það var mat þáverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, núverandi aðstoðarmanns fjármálaráðherra, hans hægri og vinstri handar, að þetta gæti haft skaðleg áhrif á úrslit kosninganna. Þess vegna var þessu leynt, ekki út af neinu öðru.
Varðandi það hvort ég telji að farið hafi verið á bak við Framsóknarflokkinn, sem varði þessa minnihlutastjórn, þá er alveg ljóst að það var gert. Það er alveg ljóst að minnihlutastjórnin, sem flokkurinn varði — frá fyrsta degi voru ekki heilindi af hennar hálfu gagnvart því. Það má alveg fullyrða það, frú forseti, sem hv. þingmaður nefndi áðan, að það kunna að hafa verið mistök hjá Framsóknarflokknum að gera þetta í ljósi þess að ekki voru heilindi af hálfu stjórnarflokkanna á bak við þetta. Það er alvarlegt mál og það er alvarlegt að segja þetta en svona var þetta. Frá því að þetta var tryggt, frá því að frá þessu var gengið, þá var flokkurinn sem studdi minnihlutastjórnina og varði settur til hliðar.
Ég vil að lokum brýna frú forseta í því að láta gera þessar upplýsingar opinberar.