ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir tillögu sem hann beinir til forseta varðandi það að gera öll gögnin í leynimöppunni svokölluðu opinber. Það vekur athygli þingheims, og væntanlega fleiri, að ríkisstjórnin talar í orði mjög mikið fyrir gagnsæjum vinnubrögðum, lýðræði og opinni stjórnsýslu en ég fæ varla hönd fest á því hvar þessi stefna ríkisstjórnarinnar birtist í framkvæmd.
Mig langaði til að athuga hvort hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson væri sammála mér um þetta og hvort hægt sé að mælast til þess að við sem störfum á þingi og höfum athugasemdir varðandi þessa meintu stefnu ríkisstjórnarinnar gætum tekið okkur saman og óskað eftir einhvers konar samantekt á því hversu oft, sérstaklega í þessu máli, við höfum þurft að beita afli til að fá fram gögn og ekki síst eins og þetta mál byrjaði allt saman þegar átti að fara með málið í gegn án þess að hv. þingmenn eða þjóðin fengi að sjá samningana sjálfa sem liggja að baki.