atvinnuleysistryggingar o.fl.
Virðulegi forseti. Það er mjög gott samstarf á milli okkar og sveitarfélaganna. Við höfum rætt mikið saman enda fjölmargir þættir þessara mála þar sem allt skarast. Ef við gerum eitthvað í þessum framfærslukerfum hefur það auðvitað bein áhrif á sveitarfélögin og svo öfugt.
Aðeins varðandi möguleika á tilfæringum innan Vinnumálastofnunar. Stofnunin er byggð upp til að þjóna landinu í 1–2% atvinnuleysi og þegar atvinnuleysi fer upp í 9%, hlutfall langtímaatvinnulausra er komið vel yfir 50% af öllum þeim sem eru atvinnulausir, segir það sig nú nokkuð sjálft að ekki er nógu margt starfsfólk til að vinna á þessum gríðarlega kúf. Ef við tækjum alla ráðgjafa Vinnumálastofnunar, svo að dæmi sé tekið, duga þeir til að sinna svona tíunda hluta þeirra sem eru langtímaatvinnulausir og þá er ekkert verið að gera fyrir aðra.
Við ætlum því að reyna að leysa þetta mál með tímabundnum aðgerðum. Við ætlum að efna til samstarfs við aðila vinnumarkaðarins. Við ætlum að efna til samstarfs við nærsamfélagið. Við erum að efna til samstarfs við Rauða krossinn um að þeir taki að sér verkefni í þessu. Við ætlum ekki að fjölga starfsfólki bara til að fjölga starfsfólki og enginn verður fastráðinn til að sinna þessu verkefni. Við munum einungis ráða fólk í tímabundin verkefni og við munum gera verksamninga við einstaka aðila eins og Rauða krossinn og aðra slíka. Við erum ekki með þessu að reyna að leggja grunn undir einhverja útþenslu Vinnumálastofnunar. Við ætlum þvert á móti að vinna málin áfram í sátt við nærsamfélagið og reyna að takast á við þennan kúf með tímabundnum aðgerðum.
Varðandi stjórnir, ráð og nefndir Vinnumálastofnunar er það þannig að ég er nú þegar búinn að lækka þar stjórnarlaun um helming. Lengra verður ekki gengið í bili vegna þess að þetta eru allt lögbundnar nefndir og stjórnir og ráð. Við þurfum einfaldlega að grisja þann skóg og hreinsa til og það er hið besta mál að fara yfir það. Við erum með vinnu í gangi við það í ráðuneytinu að fara yfir þetta, einfalda stofnanastrúktúrinn á þessu sviði.
Að síðustu var mælt (Forseti hringir.) fyrir frumvarpi um fullorðinsfræðslu á föstudagskvöld. Það var ég að heyra hér frá félaga í salnum.