atvinnuleysistryggingar o.fl.
Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og ég deili því með honum að það skiptir meginmáli að vera í góðu sambandi við þá sem veita almenna nærþjónustu, hvort heldur eru þá sveitarfélögin eða Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingarinnar, þannig að það skiptir máli.
Mig langar að gera að umræðuefni og spyrja hæstv. ráðherra um atvinnuleysi ungmenna á bilinu 18–30 ára en töluvert hefur verið rætt um það. Það hefur komið í ljós, og síðast í fréttum í morgun var viðtal þar sem það kemur fram, að menntun einstaklinga í þessum hópi er yfirleitt frekar lítil. Þeir eru með grunnskólapróf og eiga þar af leiðandi enn erfiðara að fá vinnu. Ég spyr því hæstv. ráðherra varðandi 16. gr. þessa frumvarps á bls. 4, þar sem segir að þeir sem stunda háskólanám sem nemur allt að hámarki 10 ECTS-einingum geti hugsanlega verið áfram á atvinnuleysisbótum vegna þess að það sé svo lítill hluti náms og þess vegna ekki bært til lána frá lánasjóðnum.
Nú er framhaldsskólinn heldur ekki bær til lána frá lánasjóðnum nema að mjög litlu leyti. Hefur það verið hugsað að þeir aðilar sem eru atvinnulausir, hafa litla menntun, eru ekki tilbúnir og ráða hugsanlega ekki við að fara í fullt nám í framhaldsskóla til að efla menntun sína, að þeir geti með einhverjum hætti farið inn hægt og bítandi en notið sömu kjara og 16. gr. segir til um og tekur þá til þeirra sem stunda nám á framhaldsskólastigi, í því markmiði að efla færni sína, raunfærnimat og annað til þess að komast á ný út á markaðinn.