138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

atvinnuleysistryggingar o.fl.

273. mál
[15:53]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. félags- og tryggingamálaráðherra fyrir góða yfirferð yfir það frumvarp sem hér liggur fyrir. Eins vil ég þakka nefndarmanni í hv. félags- og tryggingamálanefnd, hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni, fyrir mjög góða ræðu um frumvarpið. Ég ætlaði ekki að hafa langt mál um það, heldur fara yfir efni þess í megindráttum og ég tek undir með hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni að þetta er mjög umfangsmikið og ítarlegt frumvarp og það eru margir þættir sem við munum þurfa að skoða mjög ítarlega.

Eins og fram hefur komið er það í megindráttum þannig, frú forseti, að frumvarpið kveður á um hert eftirlit og hertar innheimtuaðgerðir í atvinnuleysistryggingakerfinu til þess að standa í raun vörð um þetta kerfi, því að það mæðir mikið á því. Það er mjög mikilvægt að við höfum í huga við þessar breytingar að þeir sem eru innan kerfisins haldi sjálfsvirðingu sinni og að breytingarnar sem gerðar verða búi ekki til sökudólga úr þeim sem hafa orðið atvinnulausir, og að við lítum svo á að það sé skylda okkar að tryggja að allir geti búið við kerfi sem er mannsæmandi. En við þurfum jafnframt núna þegar mæðir svona mikið á kerfinu að vinna sem mest gegn misnotkun á því, enda fer umtalsverður hluti ríkisútgjalda í tilfærslur til heimila. Við verðum að tryggja að sátt ríki um það meðal þjóðarinnar að nýta þessa fjármuni í þessi kerfi og tryggja að ekki sé verið að misnota þau.

Því ber einnig að halda til haga að sá sparnaður sem á að ná fram með þessum breytingum verður nýttur í úrræði til að tryggja þjónustu við þá sem eru í atvinnuleit og vinnumarkaðsúrræði og því ber að fagna því að það veitir svo sannarlega ekki af. Ég tek undir með hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni að það er mjög mikilvægt að úrræðin séu sem fjölbreyttust og séu ekki bundin á klafa þeirrar íslensku hugmyndafræði að ekkert sé nám nema bóklegt sé.

Þá vil ég nefna að í frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um félagslega aðstoð sem felur í sér að hún verði skilyrt þannig að gerð sé krafa um virkni, virka atvinnuleit og vilja til þátttöku í vinnumarkaðsákvæðum o.fl. Ég held að hv. félags- og tryggingamálanefnd verði að skoða það mjög gaumgæfilega hvort slík skilyrðing samræmist framfærsluskyldu sveitarfélaga og hvort þetta sé eitthvað sem við getum gert. Nú er það náttúrlega ljóst að þeim mun harðari sem reglur eru í atvinnuleysistryggingakerfinu, þeim mun meira mun mæða á sveitarfélögunum og við þurfum því að vera mjög meðvituð um það að við séum ekki að spara hjá ríkinu en auka útgjöld sveitarfélaga.

Í frumvarpinu er kveðið á um aðfararhæfi úrskurða, bæði úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta og úrskurðarnefndar Fæðingarorlofssjóðs. Ég tel fyllilega eðlilegt að svo sé og muni létta innheimtu á ofgreiddum bótum úr þessum kerfum en tryggja þarf að innheimtuaðgerðirnar verði þó sanngjarnar og gangi ekki of nærri fólki.

Ég vil að lokum segja, frú forseti, að það er mikið verk fyrir höndum, hæstv. ráðherra mælir hér fyrir fleiri frumvörpum. Ég treysti því að samvinnan í hv. félags- og tryggingamálanefnd verði í sama góða anda og verið hefur í stórum og erfiðum málum sem hafa verið til umfjöllunar á haustþinginu og ég get lofað hæstv. ráðherra því að hann mun fá gagnlegar og góðar breytingar er verða á þessum frumvörpum og að nefndin mun vinna þetta með miklum glæsibrag.