almannatryggingar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég harma það að hv. þm. Þorgerður K. Gunnarsdóttir ætli ekki að styðja bráðgóða tillögu mína um kynjakvóta í fyrirtækjum. Hún nefndi að konum hefði fjölgað mjög á þingi. Þá er rétt að geta þess að það er vegna sigurs vinstri flokkanna í kosningunum í vor og þar eru kynjakvótar. Það er því engin tilviljun að konum hafi fjölgað á Alþingi. Ég er sannfærð um að allar þær konur sem komu inn á þessum kvótum munu bæta þingstörf ef eitthvað er, enda eru þær komnar inn á eigin verðleikum þó að kvótinn hafi vissulega ýtt þar undir.
Mér finnst athyglisvert sem kemur fram í máli hv. þingmanns, herra forseti, að hún telur að eigendur fyrirtækja eigi ekki að axla ábyrgð á jafnréttismálum með því að velja konur jafnt sem karla til að sitja í stjórnum fyrirtækja sinna og þau eigi heldur ekki að greiða hærri skatta til að hægt sé að fjármagna fæðingarorlofið. Þá erum við einfaldlega í þeirri stöðu að þurfa að skerða fæðingarorlofið, því að tekjustofn þess dugir ekki til að greiða það fæðingarorlof sem við höfum bundið í lögum.
Ég hlakka til að sjá sparnaðartillögur Sjálfstæðisflokksins og ég minni hv. þingmann á að það verða fjárlög að þessum fjárlögum liðnum og því miður munum við þurfa að halda áfram niðurskurðinum þá. En ég tel að munum við ekki geta gengið miklu lengra í tryggingakerfunum okkar á komandi árum, þannig að þau lenda harðar í því á fyrri hluta samdráttartímans en verði þá þyrmt þegar við förum með mun harðari hætti inn í ríkisreksturinn og mörgum þykir þó nóg um nú þegar.