138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

almannatryggingar o.fl.

274. mál
[18:27]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (F) (andsvar):

Herra forseti. Þetta verður auðvitað að vega og meta. Það er búið að skerða hámarkið talsvert og ég held ég að það sé kannski rétt að tekjuhærra foreldrið muni leita ýmissa leiða, sérstaklega ef þakið yrði lækkað enn þá meira, að annaðhvort muni það fresta þeim þremur mánuðum sem það á rétt á eða taka þá í einhverjum smáskömmtum og við höfum auðvitað séð það gerast í fæðingarorlofskerfinu. Lykilatriðið er þó að ekki sé hróflað við rétti barnsins að eiga þó alla vega annað foreldrið óskipt í sex mánuði. Mér finnst það vera veigamestu rökin fyrir því að það sé þó skárra að fara í það að lækka þakið enn einu sinni heldur en að fækka fjölda mánaða. Var þetta ekki alveg kýrskýrt hjá mér? Ég vona það.

Ég vil líka undirstrika eitt, eins og kom fram í andsvari hv. þingmanns, að hér er náttúrlega verið að fara í þriðja skipti í skerðingu og þá er þetta, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, þá er þetta forgangsröðin. Það er ekki hægt að hlaupast undan því. Talað er um að fara eigi í niðurskurð hjá hinu opinbera, bráðnauðsynlegan niðurskurð, það fallast allir á það, með einhverja ákveðna forgangsröðun í huga þar sem velferðarmál eiga að njóta þess. Síðan horfum við upp á það núna að farið er í þriðja skipti í Fæðingarorlofssjóðinn og þá eru auðvitað hinar yfirlýsingarnar marklausar, þá er þetta forgangsröðin, þetta er hún. Það er auðvitað bara verulega athyglisvert og ég mótmæli því.