138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

286. mál
[19:11]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér skipan þingmannanefndar vegna einhvers merkasta, mikilvægasta og dapurlegasta máls sem nokkurn tímann hefur riðið yfir íslenska þjóð. Ég hef fengið að fylgjast með samningu þessa frumvarps frá því að fyrstu drögin litu dagsins ljós í forsætisnefnd og ég hef gert ýmsar athugasemdir við það. Að mínu mati er þetta ekki gott mál og þetta er ekki rétt leið til að höndla skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Við höfum borið málið undir fjölmarga málsmetandi menn mætti kalla það utan Alþingis og viðbrögð þeirra eru öll á sömu lund: Í guðanna bænum ekki láta þingið komast upp með að gera þetta, segja þeir, eða eitthvað á þeim nótum.

Fyrstu drögin sem ég sá, dagsett 30. október 2009, voru um margt ágæt þó að ýmislegt hafi vantað í þau. Þar var m.a. skýrt afmarkað og tilgreint, sem mér fannst til bóta, hvert verksvið þessarar þingmannanefndar ætti að vera. Hún átti m.a. að kanna grundvöll ábyrgðar á þeim atburðum sem leiddu til falls bankanna, hún átti að rannsaka einstaka þætti skýrslunnar, hún átti að geta látið rannsaka einstaka þætti málsins betur og hún átti að ljúka störfum fyrir 1. maí 2010. Allt saman mjög mikilvæg atriði og ekki síst dagsetningin. Við gerðum ekki athugasemdir á þeim tíma við þessa grein nema við óskuðum þess að í stað níu manna hefðbundinnar þingnefndar yrði skipuð nefnd fimm manna, eins úr hverjum flokki. Við töldum það skynsamlegra en að gera þetta mál að svona flokkspólitískri nefnd, hefðbundinni, þetta er það óvenjulegt mál. Við komum líka, forsætisnefnd, fram með breytingartillögur. Við lögðum m.a. til að skipuð yrði ný nefnd, fimm manna nefnd valinkunnra manna utan þingsins — þetta álit okkar byggðum við á samtölum við færa lögmenn — þar sem sú nefnd hefði það hlutverk að fjalla um þá þætti skýrslunnar sem snerta alþingismenn og ráðherra, núverandi og/eða fyrrverandi, og fjölskyldur þeirra sem og að fjalla um öll atriði sem snerta Alþingi sjálft sem stofnun og hugsanlega koma fram í skýrslunni.

Ég vil að það komi fram strax að ég tel það ekki ásættanlegt að Alþingi ætli að rannsaka sjálft sig í þessu máli, það gengur ekki upp. Nefndin átti líka, utanþingsnefndin, að koma með tillögur að viðbrögðum Alþingis við niðurstöðum skýrslunnar, þar á meðal hvaða lærdóma megi draga af þeim atburðum sem leiddu til falls bankanna, kanna grundvöll ábyrgðar á þeim atburðum og móta tillögur að breytingum á lögum í því skyni að koma í veg fyrir að atburðirnir endurtaki sig. Nefndin átti að setja sér eigin reglur og skila af sér fyrir 1. maí 2010.

Megintilgangur þessarar fimm manna nefndar er ekki að rugla málið og er ekki byggð á misskilningi eins og haldið hefur verið fram í blöðum og af hv. flutningsmanni málsins áðan. Megintilgangur nefndarinnar er einfaldlega sá að fara yfir skýrslu rannsóknarnefndarinnar og ef þar kunna að koma fram atriði sem benda til þess að sitjandi þingmenn, fyrrverandi þingmenn, sitjandi ráðherrar eða fyrrverandi ráðherrar eða Alþingi sem stofnun þurfi að skoðast betur og taka til rannsóknar, mundi þessi fimm manna nefnd utan þingsins senda þingmannanefndinni eða Alþingi sjálfu ábendingar um það sem hún teldi að þyrfti að gera. Þingið eða þingmannanefndin gæti svo eftir atvikum tekið ákvörðun um framhaldið.

Ég sé það mjög illa fyrir mér að nefnd níu þingmanna sitjandi á þingi muni hugsanlega draga til ábyrgðar fyrir landsdómi fyrrum vinnufélaga, samflokksmenn, yfirmenn, ráðherra. Það er ekki hægt að ætlast til þess af þingmönnum og það er ekki hægt að leggja það á þá að gera það. Þetta mál sker inn í merg í tilfinningalíf þjóðarinnar og vantraust þjóðarinnar á stjórnvöldum og Alþingi. Það er að núa salti í sárin að ætlast til þess að almenningur taki því þegjandi og hljóðalaust að hér verði boðið upp á að þingmenn rannsaki sjálfa sig. Þetta er illa gert fyrir skýrslu rannsóknarnefndarinnar líka, því að hún mun náttúrlega í kjölfarið verða tortryggð og að mínu mati þarf einfaldlega að taka þetta mál til algerrar endurskoðunar.

Við lögðum líka til að 5. mgr. 17. gr. hljóði svo:

„Að rannsókn nefndarinnar lokinni og við birtingu skýrslunnar skuli öll gögn sem aflað hefur verið færð á Þjóðskjalasafn Íslands og þau gerð opinber. Tryggt verði að allar upplýsingar að baki skýrslunnar sem og að baki skýrslum beggja fimm manna nefndanna, tilgreindra í 2. og 3. gr., verði opnar öllum frá fyrsta birtingardegi allra skýrslna. Ákvæði laga um persónuvernd skulu ekki gilda um upplýsingar þessar, nema í algerum undantekningartilvikum og skulu þá rækilega rökstudd með tilliti til mikilvægustu persónuverndarsjónarmiða.“

Hér förum við aðra leið að þessu máli. Í stað þess að segja: Hér höfum við skýrslu rannsóknarnefndarinnar og hún er flott og fín og við tökum allt sem hún byggir á og læsum það niðri í 40–80 ár, nálgumst við málið úr hinni áttinni og segjum: Hér er mjög merkileg skýrsla með mjög mikið af gögnum sem þarf að leyfa fólki að skoða. Við höfum þau öll opin og aðgengileg nema þau sem nauðsynlega þarf að læsa niðri. Þetta er allt önnur nálgun og það er nálgun sem tekur í burt það vantraust sem annars skapast og hefur þegar skapast í umræðunni út af þessari nefnd.

Þessum breytingartillögum okkar var öllum hafnað, að mínu viti án röksemda. Ég fékk aldrei að heyra almennilega röksemdirnar gegn þeim. Drög númer tvö litu dagsins ljós. Þau voru mun verri en fyrstu drögin. Þar var starfssvið nefndarinnar fellt út. Skiladagsetning var ekki skilgreind, þ.e. nefndin má skila af sér hvenær sem henni sýnist. Hún má skila af sér hverju sem henni sýnist og um hvað sem henni sýnist. Ég gerði strax athugasemdir við það að þarna væri verið að færa málið á enn verri veg. Sumt af því orðalagi sem fellt var út var t.d. „að kanna grundvöll ábyrgðar á þeim atburðum sem leiddi til falls bankanna“ — sú setning var felld út — „að kanna einstaka þætti skýrslunnar og gera tillögur um úrbætur“ — sú setning var felld út. Og dagsetningin, um að þessi þingmannanefnd ætti að skila af sér 10. maí, var líka felld út.

Fyrsti maðurinn sem ég sendi þessi drög og bað um athugasemd við þau, sagði: „Þessi nefnd mun skila af sér tómri froðu um verslunarmannahelgina.“ Og þannig verður viðhorf almennings, herra forseti, ef þetta frumvarp fer svona óbreytt í gegn. Það má bara ekki gerast þjóðarinnar vegna og það má ekki gerast þingsins vegna. Almenningur og þjóðin á betra skilið í framhaldi af þessu máli en að reynt verði að leysa það með einhverjum svona handarbakavinnubrögðum. Það verður einfaldlega að skoða þetta mál betur.

Hér er orðalag í greinargerð sem lætur þetta hljóma mjög vel: „… samkomulag hefur orðið innar forsætisnefndar um fyrirkomulag þeirrar meðferðar …“. Þess má geta að ég er áheyrnarfulltrúi í forsætisnefnd og hef þar af leiðandi ekki atkvæðisrétt og þess vegna er þarna skilgreint samkomulag innan forsætisnefndar. Hreyfingin og formaður þingflokksins setti sig eindregið upp á móti þessu og við skrifuðum ítarlegt bréf til forseta Alþingis í kjölfarið, þar sem segir m.a.:

„Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu til að þingmannanefndin yrði skipuð fimm þingmönnum í stað níu, einum úr hverjum flokki.“ — Eins yrði sett það skilyrði að nefndarmaður hefði ekki átt sæti á Alþingi fyrir október 2008 og hefði óumdeilanlega engin tengsl við þá atburði eða gerendur þeirra atburða sem getið er í fyrirsögn frumvarpsins.

Í öðru lagi: „Þingmenn Hreyfingarinnar lögðu auk þess til að skipuð yrði fimm manna nefnd valinkunnra manna utan þingsins sem hefði það hlutverk að fjalla um þá þætti skýrslunnar sem snerta alþingismenn, ráðherra, núverandi og/eða fyrrverandi og fjölskyldur þeirra. Það yrði einnig hlutverk þeirrar nefndar að fjalla um öll atriði sem hugsanlega kæmu fram í skýrslunni og snerta Alþingi sjálft sem stofnun.“ — Því að Alþingi hefur örugglega einhvers staðar á þessum ferli öllum saman brugðist sem stofnun.

Í þriðja lagði lögðu þingmenn Hreyfingarinnar til að gögn málsins yrðu færð á Þjóðskjalasafn og þau gerð opinber eins og hægt er.

Við lögðum áherslu á að höfð yrði í huga sú umræða sem hefur átt sér stað í þjóðfélaginu varðandi hvaða aðilar það eru sem höfuðábyrgð bera á því ástandi sem nú ríkir á Íslandi. Það er mat okkar að það er hætt við að tengsl og hagsmunaárekstrar geri trúverðugleika nefndarinnar að engu. Því væri það grundvallaratriði til þess að mark sé takandi á störfum nefndarinnar að þingmenn ákvarði ekki það verklag er varðar aðra þingmenn sem og ráðherra í þeirri vinnu sem fram undan er.

Með skipun nefndar valinkunnra manna utan þingsins sem hefði það hlutverk sem fram kom í breytingartillögunum, yrði auk þess tryggt að Alþingi yrði ekki sett í þá stöðu að veita sjálfu sér aðhald, heldur fengi stofnunin sjálf og hlutaðeigandi aðilar nauðsynlegt utanaðkomandi aðhald. Þeir atburðir sem hér hafa átt sér stað eru þess eðlis að það er nauðsynlegt að tryggja að þeir geti ekki endurtekið sig. Það er því mikilvægt að aðgangur að þeim gögnum sem til verða við vinnu rannsóknarnefndarinnar sé eins opinn og frekast sé kostur svo hægt verði að rannsaka málið til fullnustu og læra af mistökum fortíðarinnar, þ.e. að fleiri geti rannsakað þetta mál en eingöngu rannsóknarnefndin. Þetta er eitthvert merkilegasta mál í vestur-evrópskri stjórnmálasögu hvernig þetta gat gerst og það bíða fræðimenn út um allan heim í röðum til að komast að því hvað fór hér fram. Því miður var þessum breytingartillögum hafnað.

Þar sem hlutverk og skyldur þingmannanefndarinnar eru ekki nægilega afmarkaðar er hætt við því að rannsóknarskýrslan fái ekki viðeigandi meðferð. Það kann að hafa þær afleiðingar í för með sér að þeir aðilar sem ábyrgð bera í því máli sem hér er til umfjöllunar verði ekki látnir axla þá ábyrgð. Að auki eru engin tímamörk sett á vinnu þingmannanefndarinnar og þar af leiðandi er hætt við því að störf hennar dragist óæskilega. Í því samhengi ber að hafa í huga að leyfð tímamörk um málshöfðun eru samkvæmt 14. gr. laga um ráðherraábyrgð, en umrædd þingmannanefnd mun ein koma til með að hafa ákvörðunarvald um hvort landsdómur verður kallaður saman vegna mála sem Alþingi kann að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra.

Hreyfingin telur að það verði að loka fyrir alla möguleika á að Alþingi tefji að taka afstöðu til rannsóknarskýrslunnar eða að skýrslunni verði sópað undir teppið. Það fæst ekki séð að framlagt frumvarp uppfylli þau skilyrði. Álit okkar er ekki byggt á misskilningi. Það er ekki byggt á misskilningi um að nefnd utan þingsins þurfi að hafa eitthvert stjórnskipulegt vald, þingið skipar hér nefndir út og suður árið um kring til að koma með tilmæli um alls konar atriði sem þingið þarf að taka afstöðu til. Þessi fimm manna nefnd utan þingsins sem við leggjum til er ekkert öðruvísi en þær nefndir. Hún mundi koma með tilmæli og ábendingar sem þingið gæti svo tekið tillit til.

Upplýsingalög og lög um persónuvernd geta ekki átt við í svona mikilvægu máli. Þetta er fordæmalaust mál í Íslandssögunni. Það hefur hrunið hér heilt samfélag, efnahagslega og pólitískt, og það verður einfaldlega að tryggja það að málum verði ekki sópað undir teppið þó að það þurfi að sjálfsögðu að gæta ýtrustu persónuverndarsjónarmiða.

Það er því ósk mín og fleiri í Hreyfingunni, og ég get alveg lofað þingheimi því að það er ósk allra landsmanna, að þetta mál verði ekki afgreitt með þeim hætti sem Alþingi eða sem forsætisnefnd leggur til að verði gert. Ég skora á allsherjarnefnd þegar hún fær málið og tekur það fyrir á morgun, því að það liggur á að afgreiða það, að nefndin skoði þetta mál í þaula og taki afstöðu til þess með opnum huga og með hag almennings og allrar þjóðarinnar í huga, því að afgreiðslan á skýrslu rannsóknarnefndar má ekki enda í deilum eins og þetta frumvarp býður upp á.