rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.
Virðulegur forseti. Ég vildi taka stuttlega til máls um þetta frumvarp og ég get sagt það strax hér og nú að ég er í öllum aðalatriðum sammála því sem kemur þar fram. Þetta frumvarp er svo sem ekki mjög umfangsmikið á prenti en þeim mun mikilvægara, tel ég. Þetta eru fjórar greinar og þar af er gildistökugreinin fjórða greinin.
Í fyrstu greininni er fjallað um þessa níu manna þingmannanefnd sem fleiri hafa komið inn á í sínum ræðum. Það er alla vega mín skoðun, og ég hef heyrt það líka hjá fleirum sem hér hafa tekið til máls, að það þurfi að fara yfir rannsóknarskýrsluna þegar hún kemur frá rannsóknarnefndinni. Það hefur alltaf verið ljóst að þetta mál kæmi aftur inn í þingið þannig að það er ekkert nýtt að setja eigi upp þingmannanefnd til þess að fara yfir málið. Það er löngu vitað og það var rætt þegar við settum rannsóknarnefndina á stofn. Þá gerðum við okkur grein fyrir því að hingað inn kæmi heilmikill doðrantur með vondum fréttum, eins og komið hefur fram opinberlega hjá formanni nefndarinnar, og þetta væri ekki skjal sem væri í svo lausu lofti að það færi í frekari vinnslu úti í bæ hjá einhverri annarri nefnd o.s.frv. Auðvitað kemur þetta mál inn í þingið. Þá er spurning hvernig á að halda á því hérna, á þetta að vera þriggja manna nefnd, fimm manna nefnd o.s.frv.?
Það á að vera níu manna nefnd sem ég held að sé alveg ágætt því þá hefur nefndin nokkuð breiða skírskotun. Hvað á hún að gera? Þetta er ekki í grunninn rannsóknarnefnd eins og búið er að reyna að segja þjóðinni. Það hefur verið reynt að afvegaleiða þjóðina í þessari umræðu, þetta er ekki rannsóknarnefnd. Ef henni þykir sérstök ástæða til og mjög nauðsynlegt að afla frekari upplýsinga er það ekki útilokað. Þá er ákveðið ferli fyrir það en að stofninum til á þessi nefnd ekki að rannsaka neitt. Það á að vera búið, rannsóknarnefndin gerir það. Þess vegna er algjörlega fráleitt, finnst mér, að þurfa að hlusta á þessa umræðu sýknt og heilagt í fjölmiðlum. Það er reyndar aðeins að breytast, ég tek það fram, en allt of mikil umræða hefur verið í fjölmiðlum um að þessi skýrsla eigi að koma hingað inn og þingmenn eigi að sitja á henni eins og gulleggi og ákveða svo að sýna smotterí úr henni en ekki annað. Það er ekki þannig. Rannsóknarnefndin skilar mikilli skýrslu og hún verður opinber frá fyrsta degi. Allir munu sjá hana. Ég hugsa að mjög margir muni sjá hana áður en þingmenn hafa tækifæri til þess að lúslesa hana því að hér eru menn uppteknir í hinu og þessu. Ég er ekkert viss um að ég verði með þeim 63 fyrstu sem ná að lesa hana af því að allur almenningur fær hana á sömu sekúndunni.
Þessi nefnd á að fjalla um niðurstöður skýrslunnar og hún leggur til við þingið að við breytum ákveðnum lögum, sem er líklegt að þurfi að gera. Það er þá ábending frá rannsóknarnefndinni um að lögum verði breytt, hugsanlega lögum sem snúa að fjármálaeftirliti, hugsanlega einhverjum öðrum lögum eða guð má vita hverju. Það kemur hingað inn og þingið þarf þá að ákveða hvort það vilji bregðast við því eða ekki. Þá gæti þessi nefnd komið því í farveg innan þingsins og síðan þyrftu þingmenn að fjalla um það með hefðbundnum hætti og greiða atkvæði um ný lög þegar þar að kæmi.
Þessi nefnd á líka að skoða hvort það þurfi að draga ákveðna stjórnmálamenn fyrir landsdóm og það er ekki lítið mál. Enginn annar getur gert það en þingið. Hverjir geta dregið stjórnmálamenn fyrir landsdóm? Það er bara Alþingi sem getur gert það, enginn annar. Þannig eru lögin okkar og þetta verður nefndin því að skoða líka. Þetta getur verið flókið mál og það er alveg rétt sem hér hefur verið bent á að í þessu litla kunningjasamfélagi getur þetta verið erfitt. Menn verða samt að rísa undir þessu af því að lögin eru svona og menn geta ekki hlaupið frá því. Þess vegna er það líka mín skoðun og ég veit að þessir þrír einstaklingar sem eru í rannsóknarnefndinni — þetta er öflugt fólk, við sameinuðumst um að velja frekar öflugt fólk og það hefur verið þverpólitísk samstaða um þetta mál í þinginu hingað til — gera sér grein fyrir því hvað það er mikilvægt að koma skýrum skilaboðum til Alþingis í gegnum þessa skýrslu. Mér finnst því afar ólíklegt að niðurstaða þessarar rannsóknarnefndar verði óskýr, eitthvað svona „om og men“ og „já og jæja“. Mér fyndist það mjög skrýtið. Ég trúi ekki að rannsóknarnefndin leggi fram sínar tillögur með óskýrum hætti. Þetta mál er svo stórt og alvarlegt og það er svo mikilvægt að þar takist vel til að ég hef fulla trú á því að nefndin muni koma því skýrt á framfæri ef hún telur að það þurfi að draga einhvern fyrir landsdóm eða ekki, að það verði hægt að lesa það skýrt úr niðurstöðum nefndarinnar. Ég held því að rannsóknarnefndin muni hugsanlega verða dómari í þeirri sök, ef þannig má komast að orði, þannig að þetta verði það skýrt þegar niðurstaðan kemur að þingmenn þurfi ekki að velkjast mikið í vafa um hvort það sé ástæða til þess að draga einhvern fyrir landsdóm eða ekki. Ég hef engar forsendur til þess að kveða upp þann dóm eða ýja neitt að þeim málum frekar, ég hef bara trú á því að rannsóknarnefndin muni koma sinni skoðun á málinu skýrt á framfæri eftir að hafa skoðað það svona vel.
Það er hlutverk rannsóknarnefndarinnar að koma málum til sérstaks saksóknara. Þingmannanefndin hefur enga stöðu í því en margir úti í bæ halda að þessi þingmannanefnd sé þess umkomin að senda eitthvað til sérstaks saksóknara af því að þar geti eitthvað glæpsamlegt verið á ferðinni. Rannsóknarnefndin sjálf hefur haft það hlutverk samkvæmt lögum að verði hún vör við eitthvað sem er hugsanlega glæpsamlegt á hún að koma því til sérstaks saksóknara. Ef svo hefur verkast hjá rannsóknarnefndinni að hún hefur komist að einhverju slíku er það allt komið í ferli. Það á þingmannanefndin ekki að gera.
Áðan var sagt að þetta væri samtryggingarkerfi þingmanna. Ég hef enga trú á því vegna þess að ég tel að rannsóknarnefndin komi með skýrar tillögur og það er enginn annar bær til þess að taka þessar ákvarðanir en þingið. Þannig eru lögin í dag og þannig verður það. Það er engin önnur leið fær að mínu mati.
Í 2. gr. er fjallað um gögnin sem koma til þessarar rannsóknarnefndar. Ég ætla ekki að gera það að miklu umtalsefni en er þó mjög ánægð með að gefið sé svigrúm til þess að opna gagnagrunna sem hafa orðið til í þessum rannsóknum. Það er ákveðin aðferð til þess að opna þá gagnagrunna fyrir rannsóknaraðilum og mér finnst það skynsamlegt, virðulegur forseti.
Síðan er það þriðja og síðasta efnisgreinin í frumvarpinu. Hún er um friðhelgi til handa þessum þremur einstaklingum og reyndar fleirum sem vinna fyrir rannsóknarnefndina. Það er alveg ljóst að mínu mati, og við höfum líka heyrt það í fjölmiðlum og opinberlega frá formanni rannsóknarnefndarinnar, að þær fréttir sem koma verða vondar. Það er líklegt að margir verði mjög ósáttir við niðurstöðuna, einhverjir muni reyna að tortryggja niðurstöðuna og jafnvel þá sem í hlut eiga. Því er mjög mikilvægt að mínu mati að við verjum þessa einstaklinga með því að veita þeim friðhelgi þannig að það verði ekki hægt að draga þá fyrir dóm vegna þess sem kemur fram í skýrslunni. Ég mun samþykkja að þessir einstaklingar fái friðhelgi ef það verður niðurstaðan hér í þinglegri meðferð.
Ég ætla ekki að lengja mikið þessa umræðu. Ég tel mjög æskilegt að við reynum að halda þverpólitískri samstöðu um svona mál sem lúta að rannsókn á bankahruninu. Þetta er vont mál, það bera örugglega margir sök í því og það er mjög mikilvægt að þingið sameinist um efnismeðferðina en þingmenn og þingflokkar reyni ekki að klifra upp bakið hver á öðrum í þessu máli. Ef menn koma með góðar hugmyndir um frekari útfærslu á þessu frumvarpi inni í nefndinni sem fær það til umfjöllunar munum við framsóknarmenn skoða það vel en í heildina teljum við, og sú er hér stendur, að það sé ekki hægt að fara leið sem er langt frá því sem er í þessu frumvarpi. Ég styð því í heildina þetta mál, virðulegur forseti.