138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

286. mál
[20:08]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Það er alveg makalaust hversu mikið er gert til að snúa út úr þegar kemur að þessu máli. Í fyrsta lagi höfum við aldrei sagt eða látið í veðri vaka að við vitum ekki að það er þingið sem kallar landsdóm saman sem þó hefur aldrei verið kallaður saman. Maður hefur heyrt það á göngunum að löggjöfin í kringum landsdóminn sé handónýt, hún sé orðin svo gömul og rykfallin og eigi ekki við í dag.

Ég er fullkomlega meðvituð um að það er hið háa Alþingi, löggjafarvaldið, sem breytir lögum og við höfum aldrei talað gegn því eða lagt til að það geri það ekki. Við erum aftur á móti að tala um nauðsynlegt aðhald utan frá um það hvernig verður tekið á því ef eitthvað kemur fram í skýrslunni sem kallar á að þingmenn, ráðherrar eða þingið þurfi að axla ábyrgð á því að hafa brugðist þjóðinni.

Okkur finnst tímamörkin mjög mikilvægur þáttur í frumvarpinu. Það kom okkur verulega á óvart að það hefur verið tekið út og við höfum gert athugasemdir við það. Við höfum ekki fengið nein almennileg rök fyrir því af hverju það var tekið úr fyrstu drögum að þessu frumvarpi.

Varðandi traust á þingið er ekki langt síðan skýrsla kom út um að traustið hefði enn og aftur hrunið. Svo snýst þetta svolítið líka um eðli traustsins. Það er gríðarleg reiði í samfélaginu og við viljum svo sannarlega ekki hella olíu á þann eld.