rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.
Virðulegur forseti. Það var einmitt það sem ég var að vonast til, að við gætum náð þverpólitískri samstöðu um þetta mál svo að það væri ekki verið að hella olíu á neinn eld og menn gætu bara sameinast um að útskýra hvað er á ferðinni til að eyða tortryggni og reyna að upplýsa almenning um nákvæmlega stöðu þessa máls. Ég hef þá trú að það muni takast, ég hef mikla trú á íslenskri þjóð, ég held að hún skilji þetta mál að lokum. Reyndar held ég að hún sé mikið til farin að skilja þetta af því að fjölmiðlar hafa upp á síðkastið reynt að upplýsa mjög vel bæði út á hvað rannsóknarnefndin gengur, hvað hún er að vinna, og líka hvað þessi þingmannanefnd á svo að vinna í kjölfarið. Ég vil hrósa leiðurum dagblaðanna sem hafa líka tekið þetta upp.
Hér er sagt að allir þingmenn viti að það er þingið sem getur dregið fyrir landsdóm og að þingið breytir lögum — en það þurfi eitthvert aðhald utan frá. Ég held að öllum sem eru í þessum sal og fylgjast með málum hér sé ljóst að það er gífurlegt aðhald utan frá og verður þegar rannsóknarskýrslan kemur á borðið og allir lesa hana, bæði þeir sem eru reiðir og ekki reiðir og allt það — sérstaklega þeir sem eru reiðir, ég hugsa að þeir muni kannski lesa hana frekar en aðrir. Þá verður gífurlegt aðhald frá þeim öllum. Ég sé ekki að aðhaldið breytist eða batni eitthvað þó að önnur nefnd komi að málum, ég sé það ekki. Þetta er bara kaleikur sem þingið þarf að bera.
Ég tel hins vegar að það megi alveg skoða þetta með tímamörkin, það er nokkuð sem nefndin þarf að skoða betur. Auðvitað er óeðlilegt að það eigi að vinna þetta endalaust og það sé engin pressa á að klára þetta. Ég held reyndar að það verði mikil pressa á að klára þetta mál sem fyrst, það vill enginn hafa þetta hangandi mjög lengi yfir sér, held ég. En það er nokkuð sem nefndin getur skoðað frekar.