138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

286. mál
[20:12]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Já, hann verður sjálfsagt beiskur, þessi kaleikur. En út af því að hv. þm. Siv Friðleifsdóttir hefur ítrekað sagt að hún hafi óskað eftir þverpólitískri samstöðu varðandi þetta mál verð ég að segja að mér finnst svolítið merkilegt að ekki hafi verið tekið tillit til neinnar af þeim tillögum sem við lögðum fyrir, þær voru hunsaðar og við fengum engin almennileg rök fyrir því af hverju. Þá væri gagnlegt að fá góðan rökstuðning fyrir því, annan en að þetta sé beiskur kaleikur eða erfiður.

Ég held að það sé rosalega mikilvægt að við horfumst í augu við að við þurfum að fá utanaðkomandi aðhald. Þverpólitíska samstaðan gæti komið í gegnum það að við skipum fimm manna þverpólitíska nefnd sem er skipuð á svipaðan hátt og t.d. Evrópunefndin þar sem er biðlað til samstöðu þingsins um að vinna að því máli á faglegan hátt. Ég held að hefðbundin þingnefnd sé í raun og veru ekki formið til að taka á svona viðamiklu máli. Þetta er viðamikið og flókið mál og það er fjarri lagi að við séum að reyna að sá einhverjum fræjum tortryggni varðandi það. Það er a.m.k. ekki minn tilgangur, það er fjarri lagi. Ég er að gera mitt besta til að standa vörð hérna um ákveðna grunnþætti og mig skiptir gríðarlega miklu máli að ekki sé tortryggni gagnvart þessu máli. Það er tortryggni gagnvart svo miklu og mörgu í samfélaginu, m.a. gagnvart þingmönnum og ráðherrum.