138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008.

286. mál
[20:19]
Horfa

Frsm. forsætisn. (Ásta R. Jóhannesdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar í lok 1. umr. um þetta mikilvæga mál að þakka fyrir þau skoðanaskipti sem hér hafa orðið í þingsalnum sem ég tel að hafi varpað góðu ljósi á eðli málsins og vil taka undir þau orð að það er engin ástæða til að gera þetta mál tortryggilegt. Allt sem varðar bankahrunið sem kemur fram við rannsóknina verður birt í skýrslunni, það er alveg ljóst, allt. Tal um utanþingsnefnd sem eigi að taka við núna þá er það svo eins og hefur líka komið fram í umræðunni að utanþingsnefndin er rannsóknarnefndin. Hún er að ljúka störfum og hún mun skila þessari skýrslu þannig að það er þingsins að taka við henni.

Komið hefur fram sú krafa frá Hreyfingunni að öll gögn sem rannsóknarnefndin hafi verið með í vinnu sinni eigi að gera opinber. Það hefur verið gagnrýnt að ekki hafi verið heimilaður aðgangur að gagnagrunninum sem rannsóknarnefndin hefur stuðst við. Í reynd eins og kom fram í máli mínu áðan eru þessir gagnagrunnar unnir upp úr rafrænum upplýsingakerfum bankanna, þar á meðal lánabókum þeirra og öðrum bókhaldskerfum. Rannsóknarnefndin hefur steypt þessum kerfum saman til að fá heildstæða mynd af viðskiptum bankanna, stöðu þeirra og eignarhaldi. Ýmsar tölfræðilegar upplýsingar hafa síðan verið unnar úr þessum gagnagrunnum sem verða birtar í skýrslu nefndarinnar. Flestar þeirra upplýsinga sem eru í þessum gagnagrunnum hafa hins vegar enga þýðingu fyrir rannsóknina. Þær lúta aðeins að eðlilegum bankaviðskiptum venjulegra einstaklinga og fyrirtækja og koma hruninu ekki á nokkurn hátt við.

Þessir samkeyrðu gagnagrunnar verða varðveittir á Þjóðskjalasafni. Í þeim eru gögn og upplýsingar sem samkvæmt lögum eiga að vera háð bankaleynd og hefðu við venjulegar aðstæður aldrei komist í hendur ríkisvaldsins, aldrei farið á Þjóðskjalasafnið og þær hefðu aldrei orðið aðgengilegar komandi kynslóðum. En út af hruninu og rannsókninni á því verða þessir heildstæðu gagnagrunnar áfram til. Þar sem í þeim eru upplýsingar er varða einkamálefni einstaklinga er samkvæmt upplýsingalögum óheimilt að veita aðgang að þeim fyrr en eftir 80 ár. Einstaklingar og fyrirtæki eiga að geta treyst því að viðskipti þeirra við banka séu ekki gerð öllum opinber. Þessi réttur nýtur verndar mannréttindaákvæða um friðhelgi einkalífsins. Við megum ekki gleyma því að við verðum áfram að fylgja meginreglum réttarríkisins þrátt fyrir hrunið.

Þá er rétt að árétta að með frumvarpinu er verið að opna fyrir aðgang að þessum gagnagrunnum til rannsókna. Það er meginefni þessa ákvæðis og felur í sér rýmkun á aðgangi miðað við núverandi reglur.

Hvað varðar önnur undirliggjandi gögn sem ekki eru í þessum rafrænu gagnagrunnum þá fer um aðgang að þeim eftir upplýsingalögum. Umsókn um aðgang að þeim verður þá meðhöndluð í hverju tilviki eftir þeim reglum sem þar koma fram. Í stuttu máli vil ég segja að í skýrslu rannsóknarnefndarinnar verða birtar allar þær upplýsingar sem skipta máli fyrir niðurstöðu nefndarinnar.

Varðandi athugasemd frá hv. þm. Birgittu Jónsdóttur um setningu sem var í fyrstu prentun á þessu þingmáli þá voru það mistök við yfirlestur að inn fór setning sem átti alls ekki að vera í greinargerðinni um að þetta hefði verið samkomulag forsætisnefndar og formanna þingflokka. Auðvitað er ljóst að það er samkomulag í forsætisnefnd um þetta þingmál.

Ég vil líka geta þess að um leið og skýrsla rannsóknarnefndarinnar verður birt verður birt skýrsla siðferðisnefndarinnar sem starfaði samhliða rannsóknarnefndinni en sú skýrsla er mun minni en skýrsla rannsóknarnefndarinnar sem er hátt í 1.500 eða 2.000 síður en siðferðisnefndarskýrslan er eitthvað um 200–300 síður. Hvað varðar tal um utanþingsnefnd, sem hv. þingmenn Hreyfingarinnar hafa verið að tala um og eru með tillögur um, þá er því að svara að það er óljóst hvað utanþingsmenn ættu að fjalla um þegar skýrslan er komin til þingsins. Ef eitthvað kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem telja má refsivert athæfi hjá þingmanni þá er það mál sem fer til hins sérstaka saksóknara. En ef málið varðar fyrrverandi ráðherra þá er það verkefni þingsins samkvæmt stjórnarskrá að taka ákvörðun um saksókn. Þetta hefur komið ágætlega fram í máli hv. þingmanna sem hér hafa tekið til máls og sérstaklega þeirra sem eiga sæti í forsætisnefnd og hafa náttúrlega kynnt sér þetta mál mjög vel.

Þá verð ég að geta þessi í lokin að það er mjög ólíklegt að Alþingi velji þá þingmenn í þingmannanefndina sem hafa verið í hringiðu þeirra atburða sem tengjast bankahruninu. Við skulum líka hafa það í huga að utanþingsnefnd hefði ekkert vald til neinna aðgerða. Ég vil síðan ítreka það að Alþingi kemst ekki hjá því að taka að sér þetta verk og það verður vandað valið á þingmönnum sem fara í nefndina. En nú fer málið til umfjöllunar í allsherjarnefnd og þar geta menn rætt það frekar og komið með tillögur og metið hvort setja eigi einhver tímamörk og annað sem hefur verið til umræðu. Ég treysti alþingismönnum vel til að takast á hendur þetta erfiða verkefni og ég veit að málið verður unnið vel í hv. allsherjarnefnd nú þegar þessari umræðu er lokið.