138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[21:18]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Jú, ég held að það sé nú raunhæft og raunsætt, sérstaklega eftir tölvupóstsupplýsingar dagsins. Af hverju segi ég það? Jú, það kemur í ljós í þessum bréfaskiptum Indriða H. Þorlákssonar við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér heima, Mark Flanagan, að hann telur að klára þurfi Icesave-málið til þess að afgreiða lánið frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. En hvað segir Dominique Strauss-Kahn, sem vill svo til að er framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Hann segir: Þetta er ekki rétt, ábyrgðin er miklu frekar Norðurlandanna, þau hafa ekki viljað afgreiða lánin og hafa sett okkur stólinn fyrir dyrnar. Hver er að segja satt innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Samskiptin eru að verða mjög vandræðaleg.

Ég held að það sé alveg ljóst að utanríkismálanefnd verður að setjast aðeins yfir málið og fara samskipti Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem við erum stofnaðilar að, verði nú trúverðugur í málflutningi sínum. Það er ekki bara að ríkisstjórn Íslands sé margsaga í öllum sínum málflutningi í Icesave-málinu, heldur er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn nú líka orðinn margsaga. Mér finnst ekkert óeðlilegt, ef menn kunna enn þá að munda penna innan Stjórnarráðsins, að þeir skrifi núna Alþjóðagjaldeyrissjóðnum bréf, fái endanleg svör í þessu máli og biðji um samræmi í málflutningi því að þetta gerir ekkert annað en að koma róti á allan málflutning hér heima, það gerir okkur alla hluti erfiðari og lengir hugsanlega allt ferlið í heild sinni. Það eru því ekki góð samskipti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við okkur hér heima og ríkisstjórnin á að fylgja þessu eftir.

En því miður kann ríkisstjórnin ekki að haga sér í samskiptum við erlendar þjóðir eða erlendar stofnanir. Hún fylgir ekki málum eftir. Hún hefur ekki einu sinni dug í sér í þessari erfiðustu milliríkjadeilu síðari ára að gera það sem við höfum beðið hana um að gera án þess að hún fari frá, þ.e. að við vinnum öll saman að íslenskum hagsmunum (Forseti hringir.) en ekki svona í hvert í sínu lagi í stað þess að ríkisstjórnin ein sé með málið á sínu valdi. Það er það sem hefur skaðað hagsmuni okkar Íslendinga (Forseti hringir.) mest.