138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:38]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni, formanni Framsóknarflokksins, fyrir að viðurkenna að það var sérstaklega og að mínu frumkvæði haft samband við hann og hann upplýstur um gang mála og honum bauðst óheftur aðgangur að samninganefndinni eða formanni hennar. (Gripið fram í.)

Í öðru lagi minni ég á að utanríkismálanefnd, þar sem ég veit ekki betur en hv. þingmaður eigi sæti var reglulega upplýst um framvindu mála. (Gripið fram í.) Hann á þar alla vega sæti núna en fulltrúar hans voru á sínum tíma í nefndinni og væntanlega voru hæg heimatökin fyrir þá að upplýsa um það. Ég man t.d. eftir því að sem ég fór fyrir nefndina, ég hygg að það hafi verið 4. apríl, og upplýsti hana nákvæmlega um í hvaða farveg við værum að reyna að koma þessum viðræðum, (Gripið fram í.) að það væri óaðgengilegt að gera samkomulag á grundvelli þeirra hugmynda sem uppi hefðu verið í nóvember, desember og janúar um eitt risavaxið lán til 10 ára sem ríkið tæki og borgaði af fulla vexti frá fyrsta ári, en þannig var málið statt þegar við tókum við því. Ég gerði nefndarmönnum grein fyrir hugmyndum um að færa málið í það far að eignir Landsbankans yrðu notaðar og ríkið væri varið fyrir útgjöldum af þeim sökum fyrstu sjö árin á meðan eignirnar innheimtust og væru borgaðar inn á höfuðstólinn. (Gripið fram í.) Það var á þessum tímapunkti sem sá slagur stóð yfir. Ég man vel umræðurnar í utanríkismálanefnd í framhaldinu þar sem menn, fulltrúar allra flokka, ræddu það og virtust þá almennt sammála um að ekki væri um annað að ræða en að leita pólitískrar samningsniðurstöðu í þessu máli, samanber þann farveg sem það var þegar komið í. Almennt tóku menn þeim hugmyndum vel að fara inn á þetta spor með viðræðurnar. (Gripið fram í.)

Það sem vísað er til í sambandi við að eitthvað sé óaðgengilegt vísar til forsögu málsins og hefur ekkert með skuldastöðu þjóðarbúsins eða annað að gera. Það sem þarna er sagt er að það er óaðgengilegt og verður ekki af okkar hálfu lotið að samkomulagi af því tagi sem Bretar og Hollendingar voru sífellt að reyna að troða upp á okkur með vísan til forsögu málsins. Slíkt mundi ekki verða gert, hvorki fyrir (Forseti hringir.) né eftir kosningar.