ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Ég get fullvissað hv. þingmann um að mínar þumalskrúfur ryðga nú ónotaðar. Ég hef ekki beitt nokkurn þingmann þrýstingi. Hv. þingmanni, eins og öllum hér í þessum sal, er vel kunnugt um (Gripið fram í.) mikið og gott samstarf mitt og hv. þm. Ögmundar Jónassonar, sem hefur mjög afdráttarlausa skoðun á þessu máli. Aldrei í öllu þessu (Gripið fram í.) ferli hef ég reynt með einhverjum hætti t.d. að hafa áhrif á þann hv. þingmann. (Gripið fram í.) Þeir þingmenn hafa sannfæringu og þeir fara eftir henni. Ég hef engan beitt harðræði.
Hins vegar langar mig aðeins að ræða pínulítið (Gripið fram í.) rökfræði við hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur. Hv. þingmaður kemur hér og segir að hún hafi ekkert fremur en hæstv. viðskiptaráðherra gefið sér neitt um niðurstöðu málsins, gott og vel. En hún hafði samt sem áður skoðun á því að mál mundi bera að með þeim hætti að tilteknar aðstæður væru uppi, forseti Íslands yrði í útlöndum þegar málið yrði samþykkt. Með öðrum orðum, hv. þingmaður tjáir þá skoðun sína að málið verði samþykkt, hún gerir það hér í þingsal. Hver er þá munurinn á afstöðu og tjáningu hennar og hæstv. viðskiptaráðherra sem hún er búin að skamma hér blóðugum skömmum í svona fimm til tíu ræðum? Hún skammar hann fyrir að hafa sagt nákvæmlega sama. Eini munurinn er sá að hann gerir það í samtali við erlendan fjölmiðli. Hver er munurinn? Hann er enginn. Gjörðin er sú sama.
Menn eiga að hugsa sína eigin hugsun til enda áður en þeir koma hingað upp í ræðustól og fara að bölsótast út í fjarstatt fólk fyrir það eitt að notfæra sér stjórnarskrárbundinn rétt sinn til þess að hafa skoðun og tjá hana. (Gripið fram í.)