138. löggjafarþing — 40. fundur,  7. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[23:48]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Við skulum hafa í huga að stjórnarflokkarnir veittu ríkisstjórninni umboð til að skrifa undir samkomulagið frá 5. júní óséð. Ríkisstjórnin veitti fjármálaráðherra umboð til að skrifa undir þetta samkomulag og hann skrifaði undir það. Hæstv. fjármálaráðherra skrifaði undir það. Og hann gerði svo nýtt samkomulag sem hann skrifaði aftur undir. Hæstv. fjármálaráðherra er töluvert mikið blandaður í þetta mál þannig að hann getur ekki svo auðveldlega bakkað út úr þessu. Auðvitað höfum við stjórnarandstæðingar reynt að gera honum lífið létt og sagt: Þetta hefur ekkert með ríkisstjórnina að gera, nú skaltu bara taka því með þökkum að við búum til nýja samninganefnd sem fer og semur um eitthvað huggulegra eins og t.d. lægri raunvexti upp á 0,5%, eitthvað slíkt, sem mundi gera samningana bærilegri fyrir þjóðina. En hæstv. ráðherra hefur neitað því hingað til og það held ég sé ákveðin þrákelkni, en það er líka gert til að verja samninganefndina.

En svo er það hinn endinn, ég var ekki spurður um afstöðu hæstv. forsætisráðherra eða afstöðu háttvirtra samfylkingarmanna. Hv. þm. Höskuldur Þórhallsson spurði mig bara um afstöðu fjármálaráðherra. Ég er búinn að útlista hana nokkuð. En hv. samfylkingarþingmenn óttast náttúrlega aðeins um Evrópusambandið. Það er búið að sækja um, sú umsókn er skilyrðislaus og þeir vita að Bretar og Hollendingar þurfa að samþykkja hana hvorir um sig. Það verður engin aðild að Evrópusambandinu án þess að þeir samþykki. Þetta er afstaða hv. þingmanna Samfylkingarinnar og þetta er afstaða hæstv. forsætisráðherra, sem hefur opinberlega hótað því að sprengja ríkisstjórnina. Hún er eiginlega eini aðilinn í þjóðfélaginu, eða alla vega á þingi, sem hefur hótað (Forseti hringir.) að sprengja ríkisstjórnina.