ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Eina ferðina enn tölum við hér inn í nóttina um Icesave. Ef einhver skyldi hafa efast um að við værum að tala af mikilli sannfæringu og trú á það sem við höfum sagt, held ég að það hljóti að draga úr efasemdum. Ég held að þeir sem halda því fram að við séum búin að vera í málþófi ættu að geta andað rólega núna vegna þess að hér stöndum við enn og tölum þrátt fyrir að um málið hafi náðst samkomulag aftur. Það var í uppnámi, eins og menn sáu fyrr í dag, en nú er komið samkomulag aftur um að 2. umr. fari að ljúka. Af hverju förum við ekki bara heim? Málþófið hlýtur að hafa skilað því að það er komið samkomulag. En við þetta fólk vil ég segja að þetta snerist aldrei um málþóf.
Ég hef talað hér oft og ég hef talað mikið en ég hef ekki hvergi nærri sagt allt það sem ég vil segja um þetta mál vegna þess að þetta er ömurlegt mál. Og það er ömurlegt að við skulum standa hér, alltaf stjórnarandstaðan, inni í þessum sal með tóma ráðherrabekki með tóm sæti stjórnarþingmanna og ræða þetta stærsta hagsmunamál Íslendinga. Hv. þm. Pétur H. Blöndal á hrós skilið fyrir að hafa farið í gegnum ræður eða ræðuleysi hv. stjórnarliða, vegna þess að þeirra verður skömmin og þau verða dæmd í sögunni fyrir að hafa þagað í þessu stærsta hagsmunamáli Íslandssögunnar. Það er engin sátt meðal þjóðarinnar milli stjórnarinnar og þjóðarinnar í þessu máli. Seinast þegar ég athugaði fyrir nokkrum mínútum höfðu 30.918 Íslendingar skrifað sig á heimasíðu Indefence. (Gripið fram í: 30.966.) Á þessum fimm mínútum sem liðið hafa hefur þeim fjölgað í 30.966, er mér tjáð.
Þjóðin, ef einhver getur talað fyrir hana, er að segja stjórnarliðum að taka mark á sér. Þess vegna er það eins gott, af því að ég sé hv. þm. Guðbjart Hannesson sitja hér inni í hliðarsal og hv. þm. Björn Val Gíslason standa hér í dyragættinni, að menn muni standa við það samkomulag sem hér hefur verið gert. Ég treysti þessum tveimur hv. herramönnum til þess að standa við það samkomulag sem gert var við stjórnarandstöðuna og að farið verði efnislega í þessi atriði, að ekki verði kastað til höndunum vegna þess að það skiptir öllu máli að rétt sé staðið að þessu. Ég ætla ekki að gera eins og hv. þm. Vigdís Hauksdóttir sem tók undir áðan með hæstv. viðskiptaráðherra um að þetta verði allt saman staðfest, ég ætla enn þá að leyfa mér að trúa því að við náum að stoppa þetta mál. Ég veit að hv. þm. Pétur H. Blöndal deilir þeirri skoðun með mér að við höfum tækifæri til að skoða þetta mál og stoppa það. Þetta er úrslitatilraun okkar í stjórnarandstöðunni til að koma vitinu fyrir þetta fólk. Ég trúi ekki öðru en að farið verði eftir samkomulaginu, að skoðuð verði þau gögn sem við höfum farið fram á í 16 liðum að verði athuguð og fallist hefur verið á það. Hv. þm. Guðbjartur Hannesson kom í ræðustól á Alþingi og sór það við þing og við þjóð, og það mun verða skráð í Alþingistíðindi og í allar sögubækur, að það farið yrði eftir þessu samkomulagi og málið yrði unnið almennilega. Ég treysti því.
Yfirgengileg svikabrigsl, sagði hæstv. fjármálaráðherra áðan við formann Framsóknarflokksins þegar hann leyfði sér að gagnrýna hann. Það er það sem hæstv. fjármálaráðherra hefur gripið til í allri þessari umræðu, að væna þá sem voga sér að gagnrýna hann og frammistöðu hans, frammistöðu samninganefndarinnar, gagnrýna málsmeðferð, gagnrýna verklag, að halda því fram að maður sé að væna hann um einhverja — ja, ég ætlaði nú ekki að nota orðið „glæpi“ en það er næstum því það sem hæstv. fjármálaráðherra segir mann væna sig um. Það eina sem er yfirgengilegt í þessu er hvernig haldið hefur verið á þessu máli. Það er algjörlega óásættanlegt.
Ég hef trekk í trekk, alveg frá upphafi þessarar umræðu, kallað eftir gögnum. Nú fer ég fram á að þessu máli verði ekki lokið fyrr en það verður komið svar við þeim fyrirspurnum sem ég á hér inniliggjandi á Alþingi. Hæstv. utanríkisráðherra, sem er nú farinn úr salnum — það hefði nú verið gaman að eiga við hann orðastað hér — sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma við mig í dag að það væri réttur og verkfæri stjórnarandstöðunnar, þingmanna, að bera fram fyrirspurnir til framkvæmdarvaldsins vegna þess að þeim bæri að svara þeim. En ég er orðin leið á að bíða eftir þessum svörum vegna þess að langt er liðið á þetta ferli og svörin eru ekki enn komin.
Í hvert sinn sem ég hef kallað eftir upplýsingum hefur hæstv. fjármálaráðherra sagt að ég sé að ala á tortryggni, að ég sé að væna hann um að ganga ekki erinda Íslands af öllum þeim heilindum og krafti sem hann gæti gert. Ég vil rifja upp hvað þáverandi hv. þingmaður í stjórnarandstöðu, Steingrímur J. Sigfússon, sagði fyrir ári síðan, þegar hann fór fyrir blaðamannafundi Vinstri grænna og krafðist upplýsinga. 17. nóvember 2008. Það kemur fram í frétt á mbl.is, með leyfi forseta:
„Skjölin sem VG vill að gerð verði opinber eru eftirfarandi:“
Það er í sjö liðum, m.a. öll gögn vegna umsóknar um lán til AGS, samkomulag við Hollendinga sem fjármálaráðherra undirritaði í Washington vegna Icesave-deilunnar o.s.frv.
Fyrir réttu ári síðan krafðist þingmaðurinn Steingrímur J. Sigfússon upplýsinga frá framkvæmdarvaldinu. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra, sem ekki er heldur í salnum, hann er búinn að fá leiða á að sitja hérna vegna þess að umræðunni er að ljúka: Var hæstv. ráðherra, þáverandi hv. þingmaður að væna þáverandi ríkisstjórn um landráð? Var hann að segja að þeir ynnu ekki vinnuna sína sem þá voru við stjórnvölinn? Af hverju krafðist hann þessara upplýsinga? Ég leyfi mér að svara fyrir hann fyrst hann er ekki hérna. Auðvitað var hann ekkert að því, hann var að nýta rétt sinn sem þingmanns í stjórnarandstöðu til þess að fá upplýsingar frá framkvæmdarvaldinu og það er nákvæmlega það sem ég er búin að vera að gera síðan í sumar án árangurs. Ég hefði viljað spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi nú ekki fengið þær upplýsingar sem hann krafðist, vegna þess að ég hef ekki fengið þær sem ég bað um.
Og vegna þessara makalausu tölvupóstssamskipta sem verið hafa til umfjöllunar hér í dag og sem fjármálaráðuneytið fann sig knúið til að senda um sex atriða fréttatilkynningu í dag til að útskýra að það hefði nú verið af ýmsum ástæðum sem tölvupóstssamskiptin fóru fram með þessum hætti. Það þurfti líka endilega að taka fram að þessi tölvupóstssamskipti hafi verið aðgengileg þingmönnum frá því í sumar. Það var ekki það sem við vorum að ræða hér. Þessi tölvupóstssamskipti voru aðgengileg í leynimöppunum úti á nefndasviði frá því í sumar, það er alveg rétt. En hvað? Við erum bundin um þau trúnaði. Það er ekki fyrr en við lesum um þessi tölvupóstssamskipti á netinu að við getum loksins farið að tala um þau. Svona fjarstæðukennt afsakanarugl er mönnum náttúrlega til skammar.
Í mars 2009 lagði þessi sami ráðherra ríka áherslu á að það yrði sérstaklega vandað til alls utanumhalds gagna með nýju samninganefndinni. Ég spyr: Kallast það að halda vandlega utan um gögn að setja þau á eitthvert einkanetfang? Nei, það gerir það svo sannarlega ekki. Og þess vegna segi ég: Ef við ætlum að byggja upp einhvern trúnað og eitthvert traust í þessu samfélagi (Forseti hringir.) þurfum við að geta treyst því að okkur sé sagt satt. Ég verð að segja alveg eins og er að núna treysti ég því ekki.