138. löggjafarþing — 40. fundur,  8. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[00:27]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get ekki neitað því að sú spurning sem hv. þm. Höskuldur Þórhallsson beinir hérna til mín hefur auðvitað læðst að mér áður í þessari umræðu. Ég hef velt því fyrir mér hvort það sé ekki ljóst að ástæðan fyrir því að hv. þingmenn Samfylkingarinnar hafa spilað fullkomlega með í þessu máli og gengið í takti allt frá upphafi, sé einmitt sú að þeir óttast að allir hnökrar á þessu máli, Icesave-málinu, geti tafið fyrir því að þeir komist til fyrirheitna landsins, ESB. Ég kann ekki svarið við þessari spurningu, hv. þingmaður, en ég hef margoft velt þessu fyrir mér og velt þessu upp hér í ræðustól.

Ég skal heldur ekki útiloka að í hópi þingmanna stjórnarflokkanna séu einhverjir sem trúa hræðsluáróðrinum um að hér muni taka við frostavetur og ísöld ef við samþykkjum ekki Icesave-samningana eða frumvarpið óbreytt og göngum frá þessu máli með þeim hætti sem ríkisstjórnin leggur til núna. Ég er ekki frá því að það kunni að vera einhverjir í þeim hópi sem trúa þessu í einlægni.

Nú veit ég auðvitað ekkert meira en hv. þingmaður um hugarheim hv. þingmanna stjórnarflokkanna, en ég hef líka velt því fyrir mér, eins og ég reifaði reyndar hér í andsvari á laugardag, að það kunni að vera að ýmsir úr hópi þingmanna stjórnarflokkanna trúi því að þegar við erum komin í Evrópusambandið komi einhver frelsandi hönd sem muni einhvern veginn leysa okkur undan því að borga þessar skuldir þegar þær verða orðnar skuldir. Ég álít að þetta séu ekki skuldir í dag, ekki skuldir íslenska ríkisins eða íslensku þjóðarinnar, en þær verða það þegar gengið verður frá þessu máli. (Forseti hringir.) Ég velti því fyrir mér hvort menn trúi því að skuldirnar sem þá verða til muni bara hverfa einhvern tímann í framtíðinni.