138. löggjafarþing — 40. fundur,  8. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[03:26]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. Mig langar í upphafi máls míns að taka undir það sem hv. þm. Pétur H. Blöndal nefnir réttilega, að nú sé ekki lengur neinn þrýstingur í málinu. Við höfum nefnilega upplifað það aftur og aftur að meiri hlutinn hefur búið til þrýsting og komið með einhvern hræðsluáróður. Síðast en ekki síst hafa þeir búið til einhvers konar pressu og reynt að keyra málið áfram á litlum hraða, gefið lítinn tíma í fjárlaganefnd til að klára málið sómasamlega. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég var að skrifa álit að ég fékk endalaust að heyra að það lægi svo mikið á, það mundi eitthvað stórkostlegt gerast um leið og þetta yrði samþykkt.

Þar sem ég skrifaði álit upp á rúmar 30 bls. og gaf mér ágætistíma þrátt fyrir hótanir var alltaf fullyrt að það væri einhver undirliggjandi pressa. Það var engin pressa, hefur aldrei verið nein pressa og verður ekki nein pressa, það er sannleikurinn í málinu, hann hefur iðulega komið fram. Ég mun ræða það á eftir vegna þess að hæstv. fjármálaráðherra fjallaði um það í ræðu sinni og ég hef sagt það áður að ég tel mjög mikilvægt að fara mjög gaumgæfilega yfir þá ræðu. Hv. þm. Pétur H. Blöndal er að giska á hvaða skoðun stjórnarþingmenn hafa í þessu máli en á sama tíma má segja að hæstv. fjármálaráðherra sé eini þingmaðurinn og eini ráðherrann sem hefur sagt álit sitt á málinu. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að ég fari þá gaumgæfilega yfir afstöðu hans, mér finnst hún á margan hátt með miklum endemum.

Það er alveg sama hvaða rökum er teflt fram í málinu, alltaf finnur hann nýjar leiðir til að reyna að sannfæra þjóðina um að það sé gott að samþykkja Icesave. Síðast í dag reyndi hann að útskýra og réttlæta tölvupóstssamskipti á milli aðalsamningamannsins og fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem eru með miklum endemum og alveg ótrúlegt hvernig þau fóru fram — það sýnir kannski niðurlægingu Íslendinga í málinu að leitað skuli ráðgjafar til aðila sem hæstv. fjármálaráðherra hefur margoft í ræðustól lýst yfir að hafi verið að beita sér í þágu Breta og Hollendinga. Þetta er með miklum endemum, virðulegi forseti, svo ég noti ekki sterkari orð en það.

Ég hafði ekki alveg lokið umfjöllun um túlkun hæstv. fjármálaráðherra á þessum lagalegu fyrirvörum. Ég hafði rennt aðeins yfir fyrirvarann sem kenndur er við Ragnar H. Hall en eftir stendur sá stóri lagalegi fyrirvari sem einnig var settur í lögum nr. 96/2009. Hæstv. fjármálaráðherra segir hér, með leyfi forseta:

„Okkur finnst það auðvitað öllum ósanngjarnt og rangt að við skulum ekki fá úrlausn þeirra mála en það er hins vegar veruleikinn sem við okkur blasir og hefur gert allan tímann, að við höfum staðið alein með þetta viðhorf og hvergi nokkurs staðar fengið neinar undirtektir undir það að þetta væri í fyrsta lagi svona og í öðru lagi að við ættum einhvern farveg eða rétt á því að fá úr því skorið.“ — Ég ætla að leyfa mér að vera eins hjartanlega ósammála hæstv. fjármálaráðherra og hugsast getur.

Hvað er það sem meiri hlutinn er að gera núna? Hvaða breytingar ætli þeir séu að gera? Jú, það var þannig að við vildum, þ.e. það var ákveðið í lögum, að ef eitthvað jákvætt kæmi fram — hvort sem það væri dómur eða ákvörðun Evrópusambandsins, einhver úrlausnaraðili kæmi fram og segði að það væri einfaldlega ekki þannig að ríkisábyrgð sé á bak við þegar bankahrun verður — vildum við tryggja að við gætum notað það okkur í hag, að komandi kynslóðir gætu farið til Breta og Hollendinga og sagt: Nú er komið í ljós að við áttum ekki að greiða fyrir Icesave-samningana og við viljum einfaldlega draga ríkisábyrgðina til baka og það er lagalegur réttur okkar. Fyrirvarinn gekk út á það að setjast ætti niður með Bretum og Hollendingum og ræða við þá. Ef þeir af einhverjum ástæðum vildu ekki ræða við okkur, eða þá að þeir væru þeirrar skoðunar að samningaviðræður skiluðu ekki árangri, settu Íslendingar þann fyrirvara að þeir gætu einhliða sagt ríkisábyrgðinni upp. Þetta var ágætisfyrirvari.

Hvað gerði ríkisstjórnin? Jú, hún tekur þennan fyrirvara í burtu. Ef eitthvað jákvætt gerist — reyndar hefur verulega dregið úr líkum á því, mjög litlar líkur eru á því að það gerist, eins og lögmennirnir Eiríkur Tómasson og fleiri hafa bent á — eru Bretar skyldugir til að setjast niður með okkur, drekka te með okkur, og ef þeir sjá ekki ástæðu til að ræða frekar við okkur eða ef upp úr samningaviðræðunum slitnar af einhverjum ástæðum þá er það bara þannig, það er niðurstaðan. Íslendingar verða einfaldlega að bíta í það súra epli að jafnvel þó að eitthvað jákvætt gerist, t.d. ef dómur fellur sem er okkur í hag, erum við algerlega ofurseld því hvort Bretar kæri sig um það yfir höfuð að ræða við okkur. Það var snilldin á bak við þann fyrirvara sem núverandi ríkisstjórn ætlar að setja og svo er fullyrt í kjölfarið að verið sé að styrkja fyrirvarana. Þetta er með hreinum endemum.

Svo kemur snilldin. Með leyfi forseta ætla ég að lesa upp úr ræðu hæstv. fjármálaráðherra:

„Hvað er þá hægt að gera? Jú, nákvæmlega það sama og gert var í sumar, að halda þessum rétti okkar til haga, að hann standi ótvíræður í lögum, að þetta er okkar viðhorf að gera gagnaðilum okkar þetta ljóst …“ — og þetta er einmitt það sem ég hefði talið að við ættum alls ekki að gera.

Ef við ætlum með einum eða öðrum hætti að vefengja samningana með þeim orðum að á okkur hafi verið brotið, að við höfum talið að okkur hafi verið meinað að sækja rétt okkar, þá er það okkur einfaldlega í óhag ef það kemur mjög skýrt fram að við höfum verið meðvituð um þessa ákvörðun. Nú er það þannig að Íslendingar telja að þeir eigi ekki að borga Icesave eða telja sig ekki hafa lagalega skyldu til þess en gera það samt, væntanlega af góðmennsku sinni, til að gera Bretum til geðs, kyssa á vöndinn, eins og margoft hefur verið sagt í ræðustóli í kvöld — við vitum nákvæmlega hvað við erum að gera. Við vitum að við eigum ekki að borga. Við getum því ekki haldið því fram seinna meir að við höfum verið neydd til eins eða neins eins og ég skil það, því miður. Það er afar dapurt að átta sig á því að fyrirvaranum hafi verið breytt í þá veru.

En hæstv. fjármálaráðherra eyddi löngum tíma í að fara yfir þann hræðsluáróður sem hann hefur haldið á lofti og ég ætla að eyða tíma í það í næstu ræðu að fara yfir þann hræðsluáróður. Ég tel það mjög mikilvægt vegna þess að í máli þeirra þingmanna sem hér hafa talað hefur komið fram að engin ástæða er til að flýta sér. Hins vegar er ástæða til að flýta sér hægt. Þó að við höfum verið með þetta mál í höndunum síðustu fimm mánuði held ég að nú loksins sé sú staða komin upp, nú loksins sé komin sú ró á gang mála, að okkur beri skylda til að flýta okkur hægt.

Við eigum að fara um alla Evrópu og kynna málstað okkar. Við eigum að fara til annarra landa og kynna málstað okkar vegna þess að málstaður okkar er góður. Hann hefur allan tímann verið góður en honum hefur einfaldlega ekki verið haldið til haga. Erlendir aðilar, jafnvel erlend blöð og tímarit í Bretlandi, hafa verið duglegri við að gæta hagsmuna okkar en íslenska ríkisstjórnin. Það er sorglegt en ég mun fara yfir það aðeins betur á eftir og þann hræðsluáróður sem hæstv. fjármálaráðherra hefur viðhaft í málinu.