ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Frú forseti. Það dregur að lokum þessarar líklega lengstu samfelldu einstöku umræðu þingsögunnar þó deila megi um hversu vel sá tími hefur að öllu leyti nýst til málefnalegra og uppbyggilegra skoðanaskipta. Hér hafa mjög mörg stór orð verið látin falla. (Gripið fram í.) Óvenjulega stór. Því miður hefur ekki aðeins verið látið að því liggja að menn hafi ekki staðið sig sem skyldi við að gæta hagsmuna landsins heldur hefur annað og miklu verra verið gefið í skyn. Þessi orð dæma sig sjálf. Það er ekki tilefni til að svara þeim. Ég ætla ekki að taka þau til mín vegna þess að mitt mat er það að þrátt fyrir allt hafi allir á öllum tímum, frá því hrunið varð 8. október á síðasta ári, reynt að gera það sem þeir töldu best og réttast hverju sinni. Það má að sjálfsögðu mjög margt um það segja alveg frá þeim degi hvernig okkur Íslendingum hefur tekist til við erfiðar aðstæður en það hefur í sjálfu sér lítið upp á sig að þrátta um það nú. Við erum þar sem við erum stödd á þeim tímapunkti tilverunnar og í okkar glímu við vandamálin sem raun ber vitni.
Ég hafði ekki ætlað mér að fara mikið í forsögu þessa máls heldur ræða meira framhaldið en ég verð þó að segja vegna ummæla hv. þm. Bjarna Benediktssonar að aldrei hafi verið lofað neinni aðkomu ríkisins að þessu né ríkisábyrgð eða stuðningi ríkisins við úrlausn þessa máls og fleira sem hann hafði upp að íslensk stjórnvöld væru þar af leiðandi að öllu leyti óbundin gagnvart því nú að gera það sem þeim sýndist, ég get ekki orða bundist, frú forseti. Tónninn var gefinn strax 8. október 2008 í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu íslenska (Gripið fram í: Í vetur.) yfirlýsing forsætisráðherra. Þar segir, með leyfi forseta:
„Ríkisstjórn Íslands metur mikils að bresk stjórnvöld hyggjast tryggja að eigendur Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi muni ekki tapa peningum á viðskiptum við Icesave. Ríkisstjórnir landanna meta nú stöðuna og leita að viðunandi lausn fyrir alla aðila. (Gripið fram í: Viðunandi lausn.) Með breytingu á lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta eru innstæður gerðar að forgangskröfum ef kemur til skiptameðferðar. Góðar líkur eru á að eignir Landsbankans muni standa undir stærstum hluta innstæðna á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi.“ Og svo kemur: „Ríkisstjórnin ítrekar“ — ríkisstjórnin ítrekar það sem hefur þá áður verið sagt, væntanlega — „að ríkissjóður mun styðja Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta við öflun nægjanlegs fjár. Ríkisstjórn Íslands er staðráðin í að láta ekki núverandi stöðu á fjármálamörkuðum skyggja á áralanga vináttu Íslands og Bretlands.“ (Gripið fram í.) Frú forseti. Ég mælist til þess að einn tali í einu í þingsalnum. Það er búið að praktísera hitt nóg að undanförnu með afar hæpnum árangri. (Gripið fram í.)
Þetta er svona. Þetta er skjalfest. 11. sama mánaðar er send út fréttatilkynning aftur þar sem talað er um samkomulag við Hollendinga og boðað samkomulag við Breta og þáverandi fjármálaráðherra, Árni Mathiesen segir, með leyfi forseta, í fréttaviðtali: „Það hefur náðst samkomulag við Hollendinga um að við uppfyllum skuldbindingar okkar og greiðum lágmarkstrygginguna. Þeir munu hins vegar lána tryggingarsjóðnum þessa fjármuni og þetta mun verða greitt út þá í gegnum seðlabankann hollenska og við síðan endurgreiða þeim lánið.“ 11. október 2008 var málið komið í þennan farveg, heitið stuðningi íslenska ríkisins við að tryggja að við stæðum undir lágmarkstryggingunni og þegið boð um forfjármögnun, lán frá Bretum og Hollendingum til að brúa bilið. Þetta eru skjalfestar staðreyndir og málflutningur Sjálfstæðisflokksins nú dæmir sig algerlega í þessu ljósi. (Gripið fram í: Þetta er bara bull.) Það þarf ekki að hafa (Gripið fram í.) um það fleiri orð vegna þess líka að það eru sem betur fer ekki uppi þeir tímar á Íslandi að menn umskrifi samtímasöguna, ferska í vitund og minni manna og þvert á skjalfestar heimildir. (Gripið fram í.) Þeir tímar tilheyra öðrum stað í heiminum og öðrum tíma. Við lifum í upplýsingasamfélagi á Íslandi þar sem svona lagað er ekki hægt. (Gripið fram í.) Ég geri bara hlé á máli mínu meðan prúðmennin hér í salnum …
(Forseti (ÁRJ): Gefa ræðumanni hljóð.)
… hafa sína hentisemi.
Veruleikinn er sá, niðurstaðan er sú að staðan er óbreytt frá mati manna í október, nóvember, desember að eina færa leið Íslands sé leið pólitískra samninga til lausnar þessa máls. Það er veruleikinn, þungbær sem hann er. Og það er alveg sama hvernig menn reyna að afneita honum, hann er samt veruleiki. Það verður aldrei gerður góður matur úr vondu hráefni. Það verður aldrei komið heim með nettan og góðan samning um stórt og vont mál. Það er krafan um hið ómögulega, það er óraunsæi, það eru sjónhverfingar, það er sýndarmennska, það er lýðskrum að tala þannig þvert á veruleikann. Sú niðurstaða sem nú er í boði er til mikilla muna hagstæðari fyrir Ísland en það sem þarna var kallað samkomulag í fréttatilkynningum og yfirlýsingum ráðherra. Það er ómótmælanlegt. Þegar til stóð að ljúka þessu máli með láni til 10 ára á 6,7% af fullum vöxtum frá fyrsta ári. (Gripið fram í: Þetta er voðalegt.) Nú kvarta menn undan vaxtakostnaði en hvernig væri staðan á Íslandi í ár ef við værum að borga fulla vexti af allri upphæðinni og það 6,7%? (Gripið fram í.) Það er til mikilla muna hagstæðara fyrir okkur að ganga frá málinu eins og nú hafa tekist samningar um með lán til 15 ára á föstum, hóflegum vöxtum með sjö ára afborgunarleysi og þannig að gott svigrúm er til að hámarka virði eigna Landsbankans gamla og greiða inn á höfuðstólinn og lækka hann á þessu tímabili án þess að íslenska ríkið þurfi að taka á sig nokkrar byrðar af því fyrstu sjö árin. Þegar upp er staðið er þetta spurning um lán sem við Íslendingar stöndum frammi fyrir að þurfa að endurgreiða og þá skipta fyrst og fremst tilteknir hlutir máli. Hverjir eru þeir? Þeir eru lánskjörin. Þeir eru lánskjörin og eignirnar sem eru til að borga inn á reikningana. Vextir Icesave-lánanna eins og um þá er samist eru aðeins 125 punkta álag ofan á einhverja lægstu fasta langtímavexti sem sést hafa í áratugi. (PHB: Þetta er …) Hv. þm. Pétur Blöndal naut ríkulega málfrelsis á Alþingi í nótt. Ég varð vitni að því. Ég fer fram á að hv. þingmaður spilli ekki máli annarra.
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður þingmenn um að hafa hljóð.)
Þessir vextir eru það hagstæðir að það er viðurkennt að þeir eru betri en fátækustu ríkjum heimsins bjóðast almennt þegar þau eru í raun og veru komin í efnahagslega gjörgæslu (Gripið fram í.) umheimsins. Þetta eru hagstæðari vextir, Pétur Blöndal, en lánin hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Norðurlöndum og Póllandi eru umreiknuð með viðurkenndum formúlum í fasta vexti. (Gripið fram í.)
Það eru miklar eignir þegar til staðar í þrotabúi gamla Landsbankans. Menn tala eins og vextir verði greiddir að fullu upphæð um ár og aldir og umreikna það í ímyndaðar tekjuskattsgreiðslur Íslendinga. Veruleikinn er sá, ef hv. þingmenn hafa áhuga á því að vita það, að hjá skilanefnd Landsbankans eru 180 milljarðar lausir, það eru 180 milljarðar lausir (Gripið fram í.) það eru 180 milljarðar lausir nú um áramótin og 120 milljarðar í viðbót er áætlað að innheimtist í búið á næsta ári. (Gripið fram í.) Yfir 300 milljarðar kr. gætu orðið lausir til útgreiðslna strax á síðari hluta næsta árs. Um 160 milljarðar gætu þá íslenski innlánstryggingarsjóðurinn greitt inn á höfuðstólinn strax og lækkað hann um meira en 20%. Skiptir þetta ekki máli? Horfa menn algerlega fram hjá þessum hlutum? Þar til viðbótar er það auðvitað þannig, vegna þess auðvitað að vaxtagreiðslurnar eru umtalsverðar, að það er mikilvægt að leita allra leiða til að ná þeim kostnaði niður. Æskilegast er auðvitað að sem fyrst losni um eigur búsins. Gerist það ekki má leita annarra leiða engu að síður til að forgreiða inn á höfuðstólinn með tryggingu í þeim eignum sem losna þá innan fárra mánaða eða missira. (Gripið fram í.) Vaxtaskiptasamninga má gera til að verjast vaxtaáhættu og lágmarka þann kostnað.
Menn hafa mikið rætt um vaxtakostnaðinn og uppvaxta-vaxtareiknings, horft fram hjá þeirri staðreynd að tryggingarsjóðurinn hefur nú lýst sem forgangskröfu í búið vöxtum frá upphafsdegi og til 22. apríl sem og hefur tryggingarsjóðurinn lýst sem forgangskröfu í búið öllum hinum margrómaða umsýslukostnaði sem þingmenn hafa talað sig hása um. Ef menn hefðu kynnt sér ýmsar staðreyndir þessa máls sem hafa legið fyrir hefði mátt spara mikinn tíma.
Það var mat allra þeirra sérfræðinga sem íslensk stjórnvöld ráðfærðu sig við að í þessu tilviki með tilliti til lengdar lánstímans og með tilliti til þess hve mikið af lánum Ísland er að taka til skemmri tíma og breytilegum vöxtum að í því væri fólgið mikið öryggi að festa lága langtímavexti á löngu óverðtryggðu láni. Það er alveg ljóst að það hefur mikla kosti að dreifa m.a. þannig á hættunni auk þess sem hægt er að lágmarka vaxtakostnað með samningum og öðrum slíkum aðgerðum. Að sjálfsögðu verður allt reynt sem mögulegt til að gera byrðarnar sem bærilegastar og lágmarka þennan kostnað og þá skiptir auðvitað miklu máli að sem fyrst fáist greitt úr öllum álitamálum sem tefja fyrir því að útgreiðslur geti hafist úr búinu. Í því eru fólgnir miklir hagsmunir okkar, þar á meðal að það sem þessi samkoma hefur ákveðið í þeim efnum verði ekki til að tefja fyrir því að útgreiðsla geti hafist, höfuðstóllinn taki að lækka og uppsafnaður vaxtakostnaður minnki.
Um gengisáhættu hefur líka verið mikið rætt og jafnvel þá spurningu hvort betra hefði verið að greiða þessa erlendu skuld í íslenskum krónum. Ég held að í því sé sá grundvallarmisskilningur fólginn að þetta er erlend skuld og hún hefur nú fengist fjármögnuð með erlendum lánum. Greiddum við hana í krónum mundu þær krónur, sá lögeyrir sem á Íslandi verður, alltaf að lokum þurfa að skiptast í erlenda mynt (Gripið fram í.) og þegar upp er staðið eru áhrifin af því væntanlega minni eða kannski engin. Eða viljum við búa til nýjan risastóran stabba jöklabréfa erlendis í íslenskum krónum til að glíma við þaðan? Höfum við góða reynslu af hinu hérna heima? Nei, margt hefur verið sagt í þessum efnum, frú forseti, sem tíminn leyfir ekki að fara yfir og kannski gefst þess nokkurt tóm við 3. umr.
Menn hafa haft af því nokkrar áhyggjur, sumir þingmenn og ég þakka umhyggjuna, hvernig við sem ætlum að greiða þessu máli atkvæði hyggjumst verja það gagnvart kjósendum okkar. Ég kvíði því ekki. Ég er óhræddur við það. Ég hef nokkrum sinnum áður leitað til kjósenda á Íslandi, er orðinn vanur því. Það sem ég ætla mér að leggja á borðið með mér og vonandi ekki fyrr en á réttum kjördegi 2013 er að endurreisn Íslands hafi tekist, að þá séum við á sóknarbraut, að við höfum leyst okkar deilumál og vandamál, að við séum að sækja fram til batnandi lífskjara og bata og vaxtar í þjóðarbúinu á nýjan leik. Það er stóra prófið og það að leysa þetta mál er liður í því. (Gripið fram í: Ef þetta snýst ekkert við.) Hvernig verðum við alþingismenn landi og þjóð mest að gagni við erfiðar aðstæður? (Gripið fram í.) Er það með því að bera hvert annað brigslyrðum og svikabrigslum? Er það með því að hafa þessa samkomu óstarfhæfa dögum og vikum saman þannig að hún kemst ekki til verka eða er það með því að axla ábyrgð og gera það sem þjóðin ætlast til af okkur, (Gripið fram í.) að við bregðumst henni ekki þegar mest ríður á, (Gripið fram í.) að við reynumst vandanum vaxin, að við getum tekið erfiðar og þungbærar ákvarðanir ef þær eru óhjákvæmilegar til að landið komist áfram, til þess að við getum haldið verkefninu áfram, að vinna okkur út úr hruninu? Og ég segi: Þeir sem ekki eru til í að vera með í því verkefni, geri þeir svo vel og þvælist ekki fyrir. (Gripið fram í.)