138. löggjafarþing — 41. fundur,  8. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:37]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Kannski má líkja Icesave-málinu við harmleik. Í 1. þætti seldu ráðamenn vinum sínum bankana fyrir slikk, mönnum sem kunnu ekkert til bankastarfsemi. Í 2. þætti lék allt í lyndi og stofnanirnar sem áttu að fylgjast með því að farið væri að settum reglum voru uppnefndar eftirlitsiðnaður. Í 3. þætti vildu þeir sem ekki kunna að reka banka ekki lengur lána íslensku bönkunum. Þá fundu menn upp á Icesave-reikningunum, þeirri tæru snilld, og nörruðu þar með peninga út úr venjulegu fólki í útlöndum. Þeir komu höndum yfir sparifé þessa fólks. Í fjórða þætti verður íslensk þjóð að taka ábyrgð á óreiðumönnum, annars einangrumst við pólitískt og efnahagslega.

Virðulegi forseti. Þetta verða þungar byrðar en við munum geta borið þær. Ég segi já.