138. löggjafarþing — 41. fundur,  8. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[14:40]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. „Ísland er einangrað.“ Það er yfirskrift minnisblaðs sem skrifað var fyrir þáverandi hæstv. utanríkisráðherra haustið 2008. Það var hverju orði sannara og staðan var sú að semja við útlendinga, líklega bæði góða og vonda, um þá ægilegu stöðu sem Íslendingar höfðu komið sér í. Það má lengi kenna öðrum um hvernig fór en á Landsbankanum, sögu hans, uppbyggingu og hruni, bera Íslendingar einir ábyrgð. Það er siðferðisleg skylda okkar sem þjóðar að greiða lágmarkstryggingar sparifjáreigenda, venjulegs fólks í útlöndum, sem lagði í góðri trú inn á reikninga Landsbankans af því að það hélt að hann væri alvörubanki. Það er vissulega ekki gott að sitja uppi með það (Forseti hringir.) en það verðum við að gera. Það er eins gott að hv. þingmenn muni að hér er einvörðungu verið að gangast við lágmarkstryggingum í samræmi (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) við tilskipun Evrópusambandsins og þannig er frá því máli gengið eins og lagt var upp með (Forseti hringir.) í desember 2008. Frú forseti. Ég segi já.