138. löggjafarþing — 41. fundur,  8. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[15:00]
Horfa

Birgir Ármannsson (S):

Hæstv. forseti. Með þessari grein er verið að nema úr lögunum efnahagslega og lagalega fyrirvara sem settir voru í þau í sumar. Það er verið að fella brott þau skilyrði sem voru fyrir ríkisábyrgðinni, sem lutu bæði að lagalegum og efnahagslegum þáttum. Inni í því eru Ragnars H. Halls-ákvæðið, það er ákvæðið um efnahagslega þætti á borð við greiðslutíma og greiðsluþak. Í staðinn eru sett inn í viðaukasamninga ákvæði sem eru miklu veikari og hafa lítið gildi. Ég vísa til greinar hæstaréttarlögmannsins Lárusar Blöndals og prófessors Stefáns Más Stefánssonar frá 31. október þar sem þeir komast að þeirri niðurstöðu að þessar breytingar þýði að þeir lagalegu fyrirvarar sem eftir standi hafi enga lögfræðilega þýðingu, ekkert lögfræðilegt gildi. (Forseti hringir.) Þau rök þeirra hafa ekki verið hrakin. Ég segi nei.