138. löggjafarþing — 44. fundur,  15. des. 2009.

störf þingsins.

[10:40]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Aðeins fyrst um eðli sjóðanna. Það er rétt hjá hv. þingmanni að í séreignarsjóðunum er eðli málsins samkvæmt um séreign að ræða. Hv. þingmaður veit auðvitað líka að hún skiptist annars vegar í svokallaða bundna séreign, sem hefur talsverðu samtryggingarhlutverki að gegna, einkum af iðgjöldum sem voru greidd fyrir lögin um viðbótarsparnað á síðasta áratug. Ég hygg að það sé hátt í þriðjungur af því sem inni í sjóðunum er þannig að út frá jafnræðissjónarmiði væri eðlilegt að horfa til frjálsu séreignarinnar um skattlagningu í þessu efni, en hún mundi þá ekki skila þeim fjárhæðum sem hv. þingmaður er að tala um.

Ég held hins vegar að þetta sé leið sem vert er að horfa til og við erum að nýta hana að nokkru leyti með því að heimila bæði í ár og á næsta ári útgreiðslu séreignarsparnaðar og þannig fá bæði ríki og sveitarfélög skatttekjur af því. En ég hygg að í þeim mikla leiðangri sem við þurfum að fara í, bæði á gjaldahlið og tekjuhlið ríkisfjármálanna, getum við ekki skotið okkur undan því að taka ákvarðanir frá ári til árs og það sé einmitt mikilvægt að við leitum víða fanga og gerum það heldur oftar en sjaldnar þannig að við getum haft hækkanir sem allra hóflegastar hverju sinni. Ég held að það sé mikilvægur árangur sem hér hefur náðst í tekjuskatti einstaklinga, að fólki undir 270 þús. kr. er hlíft og hjá þeim sem eru þar yfir er skattbreytingum stillt í hóf eins og kostur er. Ég hygg að 0–2% hækkun á tekjuskattshlutfalli hjá þeim sem þar eru yfir sé innan þeirra marka sem við öll máttum vænta að þurfa að bera, bæði eftir þetta hrun og fyrir óforsjálni okkar sjálfra í þeim skattalækkunum sem ráðist var í í tekjuskatti á þarsíðasta kjörtímabili.