hlutafélög og einkahlutafélög.
Herra forseti. Ég er ekki í neinu orðastagli við hv. þingmann. Hv. þingmaður hélt því fram að þetta væri unnið í góðu samstarfi. Ég las umsögn sem sýnir fram á að atvinnulífið upplifir þetta ekki sem gott samstarf. Þetta er álíka og ef drep kemur í fótinn á þér og læknirinn segir: Ég þarf að taka af þér fótinn. Hvort viltu að ég höggvi eða skeri? Það er kannski af læknisins hálfu mjög mikið samstarf en niðurstaðan er kunn. Það þarf að taka af þér fótinn.
Mér finnst þetta ekki lýsa einu eða neinu samstarfi. Það er verið að setja þarna inn ákvæði sem gestir er komu á fund nefndarinnar báðust undan að yrði sett og ég er algerlega sammála því. En að sama skapi voru þessir gestir allir með tölu algerlega sammála því að við þurfum að ná þessu markmiði. Ákallið var um að leyfa þeim að gera þetta í friði. Ég tek undir það ákall og ég segi það aftur hér.
Það var t.d. einn gestur sem fór yfir það af hverju við erum í þessum vandræðum. Það er vegna þess hvernig skipað er í stjórnir, og hvernig er það? Maður sem þekkir mann sem þekkir mann sem þekkir mann sem þekkir engar konur. Þannig orðaði gesturinn það. Eigum við þá ekki að fjölga konunum í vinahópi þessara karla vegna þess að þannig (Gripið fram í: Með lögum.) — nei, ekki með lögum, heldur með því að hvetja til þess samstarfssamnings sem okkar flokkar hafa allir kvittað upp á. Gröfum ekki undan þeim samstarfssamningi með því að koma á einhverjum þvinguðum aðgerðum. Það er það sem ég er að segja. Mér finnst alveg með ólíkindum að það sé í þessu eins og í máli sem við vorum að ræða í gær, um skattamál, þegar því var haldið fram að orkufyrirtækin hafi komið á hnjánum og beðið um að fá að greiða skattinn fyrir fram, það sé dæmi um samstarfsvilja ríkisstjórnarinnar. Þessi ríkisstjórn þekkir ekki samstarf þótt það mundi lenda í andlitinu á henni. Það er einfaldlega þannig. Þetta er ekki samstarf, virðulegi forseti. Þetta eru þvingaðar kynjakvótaleiðir sem ég er mótfallin.