138. löggjafarþing — 48. fundur,  16. des. 2009.

almannatryggingar o.fl.

274. mál
[19:20]
Horfa

Frsm. meiri hluta fél.- og trn. (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er skemmtilegt frá því að segja að tveir hv. þingmenn hafa í dag, þeir Jón Gunnarsson og Tryggvi Þór Herbertsson, gagnrýnt lagasetningu um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja á þeim forsendum að þá geti konur ekki átt fyrirtæki og skipað stjórnirnar eingöngu konum. Ég hafði ekki séð þennan skemmtilega vinkil á málinu. Áðan var nefnt fyrirtækið Auður Capital en það veit ég að þær hafa sóst eftir bæði hæfum körlum og konum í stjórn og ég held að það fyrirtæki vilji síst láta vorkenna sér út af þessari lagasetningu. Ég tel að með lagasetningunni um kvóta í stjórnum fyrirtækja sé einmitt verið að skapa þetta svigrúm til að konur jafnt sem karlmenn fái notið sín í hlutverki stjórnarmanna og við völd í fyrirtækjum til að stjórna íslensku atvinnulífi. Ég tel rétt að árétta það.

Vissulega er munur á þessari löggjöf. Ég geri mér algjörlega grein fyrir því. Ég vil líka taka fram að varðandi lögin um fæðingarorlof og skerðingu á fæðingarorlofi drögum við í meiri hluta nefndarinnar ekki dul á að við höfum áhyggjur af þessum skerðingum. Þetta er ekkert til að hafa í flimtingum. Við munum líka eins og fram kemur í nefndaráliti fara fram á að félags- og tryggingamálaráðherra láti gera rækilega úttekt á því hvaða áhrif þessar skerðingar hafa og hafa haft, sem hafa verið gerðar nú þegar og munu verða, og síðan ræðum við líka ítarlega að það þurfi að fara fram endurskoðun á fjármögnun kerfisins.