fundarstjórn.
Frú forseti. Það var ágætt að heyra sjónarmið hv. þm. Tryggva Þórs Herbertssonar og þá lýsingu sem hann hafði á þessu ferli vegna þess að hann talaði akkúrat um það atriði sem var einn af ásteytingarsteinunum á fundinum í viðskiptanefnd áðan. Þar var því haldið fram blákalt að skuldaþolið ætti ekki að ræðast í viðskiptanefnd þvert á það sem hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson sagði áðan og ég trúi mínum ágæta félaga þegar hann segir þetta.
Burt séð frá því hvort það hafi verið ágreiningur um þau atriði sem átti að ræða þá er ágreiningur líka um efni þessa álits. Við erum ekki að klára það verkefni sem okkur var falið samkvæmt samkomulaginu og ég leyfi mér að lesa síðustu setninguna í álitinu:
„Óvissa um fjárflæði út úr þrotabúinu kom í veg fyrir að Seðlabanki Íslands gæti lagt mat á hversu miklar fjárskuldbindingar felist í Icesave-samningnum.“
Það sem við áttum hins vegar að gera var að afla upplýsinga (Forseti hringir.) um hve miklar fjárskuldbindingar fælust í Icesave-samningnum. (Forseti hringir.) Þarna er verið að segja að það sé ekki nokkur leið að finna út úr þessu, og við erum búin að halda einn fund.