138. löggjafarþing — 48. fundur,  16. des. 2009.

fundarstjórn.

[20:14]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Það er algjörlega ljóst að það eru uppi meiningar um það hvort staðið er við það samkomulag sem gert var hér fyrir níu dögum eða ekki. Það er mjög einfalt að ganga úr skugga um það. Fjárlaganefnd sendi bréf annars vegar til viðskiptanefndar og hins vegar til efnahags- og skattanefndar og þá kemur í ljós að það eru ekki öll atriðin sem samið var um í þeim bréfum, og, virðulegur forseti, það er hægur vandi að virðulegur forseti sýni fram á það hver hefur rétt fyrir sér í þessu máli. Það þýðir ekkert fyrir hv. þingmenn að koma hér upp og blaðra eitthvað út í loftið, blaðra um að það sé staðið við samkomulag þegar augljóslega er verið að brjóta það.

Virðulegi forseti. Ég ætla að biðja virðulegan forseta um að gerast úrskurðaraðili í þessu máli.