138. löggjafarþing — 49. fundur, 17. des. 2009.
störf lögreglunnar og ummæli heilbrigðisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég er svo sannarlega ekki sammála því að um hefndaraðgerð lögreglu hafi verið að ræða á neinn hátt. Ég tel að lögreglan hafi einmitt staðið sig með mikilli prýði í þeim atburðum sem urðu og ég lýsti því yfir í sumar að ég væri hissa á því að lögreglan skyldi ekki hafa fengið heiðursmerki fyrir sína framgöngu. Þeir stóðu sig ákaflega vel í mjög óvenjulegum aðstæðum og ég tel að það hefði ekki verið hægt að gera þetta betur.