138. löggjafarþing — 49. fundur,  17. des. 2009.

skattaáform ríkisstjórnarinnar.

[10:42]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Virðulegi forseti. Það er með ólíkindum að heyra þennan málflutning. Hér sagði hæstv. félagsmálaráðherra að allir sem eru með 200 þús. kr. komi betur út úr skattkerfisbreytingum ríkisstjórnarinnar en óbreyttu kerfi. Ég vona að Gylfi Arnbjörnsson sé að hlusta vegna þess að þeir skilja ekki hvað stjórnvöld eru að gera. Þeir skilja bara ekkert í áhrifum þess fjárlagafrumvarps og þeirra skattafrumvarpa sem liggja fyrir þinginu.

Hér er talað um að við höfum ekki efni á því að láta persónuafsláttinn fylgja verðlagi. Gott og vel. Tökum þá umræðu en ríkisstjórnin getur ekki komið inn í þingið með frumvarp sem augljóslega skerðir kjör allra, leiðir til þess að allir þurfa að borga hærri skatta en samkvæmt gildandi lögum, og haldið fram að hún hlífi sérstaklega þeim sem lægst hafa kjörin. Hún getur það ekki. Hver er annars ástæðan fyrir því að Gylfi Arnbjörnsson segir ríkisstjórnina vera uppi með grófar rangfærslur? (Forseti hringir.) Það hefði aldeilis verið talin frétt til næsta bæjar ef oddvitar ríkisstjórnarinnar hefðu komið hreint fram og upplýst þjóðina um að stefna hennar í skattamálum væri að afnema verðtryggingu persónuafsláttar og standa ekki við gerða samninga. (Gripið fram í: Rétt.)