138. löggjafarþing — 49. fundur,  17. des. 2009.

stuðningur við fyrirhugað gagnaver.

[10:45]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. iðnaðarráðherra að eftirfarandi: Telur hæstv. ráðherra eðlilegt að veita fyrirtæki sem að stórum hluta eða um 40% er í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar svo mikla viðskiptafyrirgreiðslu sem ætlunin er að gera með stuðningi ríkisins vegna fyrirhugaðs gagnavers á Vallaheiði? Ég vil taka fram að ég hef ekkert á móti gagnaverum. (Gripið fram í: En Björgólfi?) Já.

Telur hæstv. ráðherra eðlilegt að viðkomandi eigandi, þ.e. Björgólfur Thor Björgólfsson, ætti ekki fyrst að skila þýfinu sem hvarf af Icesave-reikningunum sem hann ber beina ábyrgð á? Finnst hæstv. iðnaðarráðherra Katrínu Júlíusdóttur eðlilegt að Björgólfur Thor Björgólfsson fái slíka fyrirgreiðslu? Hvar eru þá hennar siðferðislegu mörk, ef einhvers staðar, hvað varðar stuðning við fyrirtæki? Getur hver sem er vænst stuðnings frá iðnaðarráðuneytinu svo fremi sem hann eigi peninga og vilji fjárfesta á Íslandi?