umhverfis- og auðlindaskattur.
Virðulegi forseti. Ég vildi byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem ég get nánast að öllu leyti tekið undir. Hv. þingmaður kom inn á að þetta mundi mynda mikið flækjustig, að það yrði flókið og erfitt í framkvæmd að breyta þessu gagnvart innheimtukerfinu. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort eitthvað hafi verið skoðað hvaða aukinn kostnað þetta hefði í för með sér miðað við það að breyta hugbúnaði til að uppfylla það að innheimta, eins og hann benti á, kannski oft og tíðum örfáar krónur á mánuði. Var það eitthvað metið af hálfu efnahags- og skattanefndar hvað það mundi þýða í kostnaðarauka? Hv. þingmaður kom líka inn á það í ræðu sinni að þetta væri landsbyggðarskattur sem ég get að mörgu leyti tekið undir. Íbúar á landsbyggðinni eru frekar háðir einkabílum en íbúar á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að oft er um meiri vegalengdir að ræða og eins er minna um almenningssamgöngur. Telur hv. þingmaður að þess vegna sé þetta verra fyrir landsbyggðina? Fyrir utan það langar mig að spyrja hv. þingmann hvað hann telji að þetta muni hækka flutningskostnað út á landsbyggðina. Öll aðföng koma þar að sjálfsögðu með flutningabílum. Hvað telur hann að það muni hafa mikil áhrif? Við vitum að allar svona hækkanir fara náttúrlega beint út í verðlagið.
Síðan langar mig að spyrja hv. þingmann um þá umræðu sem átti sér stað í efnahags- og skattanefnd. Það kemur fram í tillögum ríkisstjórnarinnar hjá fjárlaganefnd að það séu 30,8 millj. kr. sem íbúar á köldum svæðum þurfi ekki að greiða vegna hækkunarinnar. Var umræðan þannig í hv. efnahags- og skattanefnd að komi annað hugsanlega í ljós, að kostnaður verði hugsanlega meiri, muni ríkisvaldið endurgreiða það sem út af stendur? Það er oft sem áætlanir standast ekki og kostnaðarauki verður meiri en ráð er fyrir gert.