umhverfis- og auðlindaskattur.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að heyra í hv. þm. Ögmundi Jónassyni í þingsal. Ég er á öndverðum meiði við skoðun Sjálfstæðisflokksins og mér finnst að þau gangi ekki nógu langt. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með hvernig hefur verið tekið á þessu máli. Eins og 2. minni hluti í efnahags- og skattanefnd benti á er stóriðjan enn með orkukaupasamninga til langs tíma og það sama gildir t.d. um útgerðina sem telur sig vera með fiskkaupasamninga til óendanlegrar framtíðar. Í raun og veru er svolítið sorglegt að ekki skuli vera lagður neinn skattur á gasið sem kemur í fljótandi formi og er nýtt eins og stendur í áliti 2. minni hluta, með leyfi forseta:
„Annar minni hluti benti jafnframt á það við vinnslu málsins að kolefnisgjald ætti aðeins að innheimta af fljótandi jarðefnaeldsneyti. Þannig verða undanskildir stærstu gasnotendur á Íslandi, sem eru álverin sem fá reglulega tankskip fyllt gasi til landsins. Gasið er nýtt til að halda áli bráðnu meðan það er í vinnsluferli. Um gríðarlegt magn af gasi er að ræða sem tekin hefur verið upplýst ákvörðun um að halda fyrir utan hið nýja kolefnisgjald.“
Mig langar að spyrja hv. þm. Ögmund Jónasson hvort hann sé hlynntur þessu og hvort það sé ekki tilefni til að beygja sig ekki alveg svona mikið undir stóriðjuna í þessu máli.