138. löggjafarþing — 51. fundur,  18. des. 2009.

umhverfis- og auðlindaskattur.

257. mál
[18:38]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er ekki alveg sannfærð. Hv. þingmaður talar sem sagt um skattana og það er talað um hugmynd Sjálfstæðisflokksins að skattleggja séreignarsparnað. Þá segir hv. þingmaður að það sé verið að fresta vandamálinu. Er ekki verið að fresta vandamálinu til dæmis með Icesave? Þar er verið að tala um sjö ára skjól á meðan við greiðum vexti upp í topp. Ég skil því ekki alveg hver rökin eru með þessu ef vandanum er frestað á einum stað og það er ekki í lagi en það er í lagi að fresta honum á öðrum.

Jafnframt langaði mig til að spyrja hvort hv. þingmaður hafi ekki áhyggjur af því að með því að leggja svona mikla áherslu á niðurskurð komum við hreinlega til með að rústa grunnstoðum samfélagsins. Ég hef kannski þyngstar áhyggjur af því og ég veit að hv. þingmaður hefur líka gríðarlegar áhyggjur af því. Heldur hann að það sé gengið nógu langt á stóriðjuna sem vissulega (Forseti hringir.) fær að skara eld að sinni köku (Forseti hringir.) með þessu frumvarpi? Þeir geta vissulega borgað miklu meira. (Forseti hringir.) Það er það sem ég hef áhyggjur af, að ekki sé tekið nægilegt tillit til (Forseti hringir.) þess.