ráðstafanir í skattamálum.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti og breytingartillögum meiri hlutans milli umræðna. Það lýtur að virðisaukaskatti en þar er gert ráð fyrir að sú breyting verði á efra þrepi virðisaukaskattsins að í stað þess að hann hækki í 25% hækki hann um 0,5% meira eða í 25,5%. Þá hefur komið fram milli umræðna að tekjur af virðisaukaskatti og raunar tekjur af skattheimtu almennt verði ívið meiri en ráðgert var við framlagningu fjárlagafrumvarpsins eða um 3 milljarðar kr., þar af fáist 1.600 millj. kr. meira af óbreyttum sköttum í tekjur á næsta ári vegna endurmats á tekjum af virðisaukaskatti. Gerir það að verkum að unnt er að falla frá að sinni nýju virðisaukaskattsþrepi, 14%, sem fyrirhugað var. Það þrep sætti nokkurri gagnrýni í umfjöllun nefndarinnar vegna aukningar á flækjustigi auk þess sem þeir sem um skattframkvæmd fjalla bentu á að nú um áramótin er verið að gera mjög umfangsmiklar kerfisbreytingar á skattumdæmunum sem og að innleiða miklar kerfisbreytingar í tekjuskatti þannig að það væri ekki heppileg tímasetning að ráðast í þetta jafnhliða og verða því ekki breytingar á neðra þrepi virðisaukaskattsins, 7%-þrepinu svokallaða. Þó er viðbúið að í það þurfi að ráðast síðar á tímabilinu, enda margyfirlýst af hálfu ríkisstjórnarinnar að þær skattalækkanir sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum, bæði í virðisaukaskatti og tekjuskatti, muni vegna aðstæðna í ríkisfjármálum þurfa að afturkalla í ýmsum áföngum.
Hér eru sömuleiðis gerðar tillögur um áfengisgjöld og gjöld á tóbak og er um þær að segja að þar er í þriðja sinn á árinu verið að hækka þau gjöld og gerir meiri hlutinn ekki athugasemdir við það, enda var nokkurt svigrúm til slíkra hækkana því að þessi gjöld höfðu ekki fylgt verðlagi mjög lengi. Meiri hlutinn telur engu að síður að þau sjónarmið sem fram hafa komið í umfjöllun fyrir nefndinni að það fari að nálgast þau mörk að frekari hækkanir umfram þetta og umfram verðlagsþróun almennt kunni að hafa áhrif á tekjustofninn sjálfan þannig að hann fari að skreppa saman og hækkanir skili ekki tilætluðum árangri, en telur hins vegar að líkur séu á að sú hækkun sem hér er lögð til skili umtalsverðum árangri á næsta ári, m.a. í ljósi umsagnar frá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.
Hér er sömuleiðis verið að fjalla um vörugjöld í bensíni og bifreiðagjöldin sem eiga að skila 600 millj. annars vegar og 500 millj. hins vegar og eru ekki gerðar tillögur að neinum breytingum á þeim en hér er líka um að ræða umtalsverðar breytingar á aukatekjum ríkissjóðs, svokölluðum dómsmálagjöldum meðal annars að langstærstu leyti. Það eru gjöld sem ekki hafa hækkað með verðlagi um margra ára skeið eða frá 2004 og verður því umtalsverð hækkun á en ekki eru gerðar tillögur að breytingum á því. Hins vegar vil ég leggja áherslu á að heppilegra er í slíkri gjaldtöku að sú gjaldtaka fylgi verðlagi með skemmra millibili þannig að ekki þurfi að koma til hækkunar slíkra gjalda í svo stórum stökkum eins og hér um ræðir og það sé almennt farsælla um skattframkvæmdina.
Öllum er ljóst hvers vegna verið er að gera þessar tillögur að hækkun á gjöldum á vöru og þjónustu. Við búum við gríðarlega mikinn halla á ríkissjóði og þann halla verður að brúa, bæði á tekju- og gjaldahliðinni. Gert er ráð fyrir að ívið meira af honum verði brúað á gjaldahliðinni yfir þetta lengra tímabil, næstu þrjú árin, og þær tillögur sem hér eru að breytingu á óbeinu sköttunum miðast náttúrlega að því að auka tekjur af því. Sem betur fer er þó þörfin fyrir nýjar skatttekjur í virðisaukaskatti og vörugjöldum talsvert lægri en hún var ætluð í fjárlagafrumvarpinu og því skemur gengið en þar var gert ráð fyrir enda hefur samdráttur í samfélaginu sem betur fer orðið minni en menn hafa ráðgert og er það út af fyrir sig vel, því að það hefur auðvitað um leið ákveðin jákvæð áhrif á verðlagsáhrifin.