ráðstafanir í skattamálum.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að hér er verið að hækka aukatekjur ríkissjóðs sem lúta að dómsmálagjöldunum mjög umtalsvert. Almennt er það um 50% sem helgast bara af verðbólgunni frá því þegar þau síðast voru hækkuð. Eins og kom fram í framsöguræðu minni er óheppilegt að slík gjöld séu ekki hækkuð með reglulegra millibili, þannig að ekki þurfi að koma til svona mikilla hækkana eins og er þegar dregst úr hófi að leiðrétta þau miðað við verðlag.
Hvað varðar hækkunina á stefnunum sem er hækkun upp í 15 þús. kr. er það rétt að sú hækkun er umtalsvert umfram þessi 50%. Þar búa bara að baki þau sjónarmið að það að stefna sé umtalsverð ákvörðun og að 15 þús. kr. sé málefnalegt gjald sem taki mið af meðalhófi. Ég held að það sé eitthvað sem hv. þingmaður getur tekið undir að það er auðvitað líka mikilvægt að gæta að dómstólunum og starfsumhverfi þeirra núna þegar mikið er af málum hjá þeim og á þeirra könnu og gríðarlega mikið álag þar. En ég vil líka taka undir með hv. þingmanni að í þessu efni kynni þá fremur að vera, ef menn vilja bregðast við, ástæða til að skoða aftur gjafsóknarþáttinn sem var því miður þrengt umtalsvert að og ég get tekið undir áhyggjur hv. þingmanns af því.