138. löggjafarþing — 54. fundur,  19. des. 2009.

fundarstjórn.

[17:50]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil sem fyrrverandi forseti borgarstjórnar og borgarfulltrúi í Reykjavík, sem hef átt þess kost að fylgjast vel með störfum hæstv. forseta, lýsa því yfir að mér þykir leitt að heyra dróttað að honum með þessum hætti. Ég held að hann sé kunnur að því að gera ekki flokkamun í störfum sínum og ég hef veitt því athygli. Það er auðvitað margt sem er í gangi undir atkvæðagreiðslum og það er rétt að stundum biðja menn aðeins of seint um orðið. Þannig bað sessunautur minn, hv. þm. Framsóknarflokksins Eygló Harðardóttir, aðeins of seint um orðið um atkvæðagreiðsluna í upphafi og forseti veitti hv. þingmanni þá orðið þannig að ég held að það séu ómaklegar ásakanir í garð hæstv. forseta að hann geri flokkamun á því hverjum er gefið orðið. Auðvitað er það meginregla að menn eiga að biðja um orðið áður en atkvæðagreiðslan hefst þannig að sá hluti dagskrárinnar breytist ekki í svör og andsvör.