138. löggjafarþing — 56. fundur,  21. des. 2009.

tekjuöflun ríkisins.

256. mál
[10:04]
Horfa

Magnús Orri Schram (Sf):

Virðulegi forseti. Það er komið að lokum þessarar atkvæðagreiðslu og athyglisvert hefur þótt að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru á móti jafnari dreifingu í skattbyrði. Þau eru á móti afnámi sjómannaafsláttar og þau eru á móti tímabundnum auðlegðarskatti. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sem þykjast berjast fyrir hagsmunum lágtekjufólks í þessu landi eru á móti því að þeir sem eiga um eða yfir 100 millj. kr. nettó í hreina eign borgi 12.500 kr. af hverri milljón sem umfram er. Hún fannst þá, skjaldborgin, eftir allt saman. [Háreysti í þingsal.]