138. löggjafarþing — 58. fundur,  21. des. 2009.

eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka hf., Arion banka hf. og NBI hf.

336. mál
[20:49]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Það er nú ekki hægt að standast svona frýjunarorð. Ég hlýt að taka þeirri áskorun að segja nokkur orð í tilefni af 1. umr. um frumvarpið sem ég vel að merkja þakka fjárlaganefnd eða meira hluta fjárlaganefndar fyrir að flytja. Það er sjálfsagður hlutur að gera ráðstafanir til þess að það sé hafið yfir allan vafa að þær ráðstafanir sem verið er að gera í þessum efnum byggi á traustri og fullnægjandi lagastoð.

Fyrst um það mál. Það var, eins og fram hefur komið, alveg eindregin og skýr afstaða fjármálaráðuneytisins að fullnægjandi heimildir væru til staðar til að ljúka málunum á þeim grunni sem samningarnir fela í sér, það hefur verið allt frá síðasta sumri. Ekki var talinn minnsti vafi á því að heimilt væri að fara með samningaferlið í þann farveg sem samkomulag um 20. júlí setti það í, þar sem niðurstaðan varð að semja með tvo valkvæða möguleika um endanlegt uppgjör milli gömlu og nýju bankanna sem annars vegar fæli í sér þann möguleika í tilviki Glitnis og Kaupþings og skilanefndanna fyrir hönd þeirra banka að gerast eigendur að stórum hluta að hinum nýju bönkum og eignast þá, þá bókhaldslega, frá byrjun eða frá stofnun þeirra. En hins vegar, ef niðurstaða þeirra yrði sú að velja ekki þann kost mundi ríkið eignast bankana, fjármagna þá að fullu en skilanefndirnar eða kröfuhafarnir í gegnum þær ættu kauprétt á hlutafé í bönkunum í þrjú ár eða að þremur árum liðnum sem þýddi þá aftur að ríkið fengi sitt til baka með góðri ávöxtun.

Unnið hefur verið á þeim grunni sem liggur í eðli þessara samninga að hið endanlega eignarhald skýrist þá fyrst að skilanefndirnar og kröfuhafarnir hafi tekið ákvörðun sína. Í raun ríkir millibilsástand allt frá því að bankarnir voru stofnaðir með lágmarkshlutafé frá ríkinu, 775 milljónum hver, og þangað til það kemst á hreint hvor aðilinn verður eigandi bankanna. Bankarnir hafa starfað á grundvelli lágmarkshlutafjárins með tímabundinni heimild frá Fjármálaeftirlitinu og það hefur verið staða málsins síðan þeir voru stofnaðir.

Þar af leiðandi, þar sem ekki væri um að ræða sölu á þegar orðnum hlut ríkisins og þar sem áframhaldandi eignarhlutur ríkisins yrði a.m.k. jafnverðmætur eða meiri og upphaflega hlutaféð sem inn var lagt, væri ríkið ekki að selja eitt eða neitt heldur væri niðurstaða samninganna uppgjör á milli gömlu og nýju bankanna, tæki, instrúment til að leysa það mál og þá fyrst kæmi í ljós hvor yrði eigandinn að stærstum hluta, ríkið eða skilanefndirnar. Enda er í frumvarpinu ekki verið að fara fram á heimild til sölu heldur heimild til ótvíræðrar lagaheimildar til að þessar ráðstafanir gangi eftir og ekki sé uppi vafi um að fyrir því séu fullnægjandi lagaheimildir. Það er sjálfsagt mál að taka hana af, það er engin viðkvæmni af minni hálfu gagnvart því. Málið liggur ljóst fyrir. Þetta var afstaða fjármálaráðuneytisins byggð á lögfræðilegri álitsgerð sem var aflað í þessu skyni einmitt til þess að tryggja að ekki væri óvissa í þeim efnum og fjármálaráðuneytið var í raun grandalaust um að öðruvísi væri litið á málið þangað til athugasemdir Ríkisendurskoðunar komu fram. Þær ber að sjálfsögðu að taka alvarlega og vegna þessarar óvissu er rétt og skylt að ganga frá málinu.

Aðalatriðið er þó það samkomulag sem er í höfn í þessum efnum og sá stóri tímamótaatburður sem má segja að hafi verið staðfestur nú á dögunum þegar samningum um síðasta stóra viðskiptabankanna af þremur lauk þegar undirritaðir voru síðasta mánudag eða þriðjudag samningarnir um Landsbankann. Þá var í höfn niðurstaða og samkomulag um frágang þessara mála í tilviki allra viðskiptabankanna þriggja. Það samkomulag er, hvað sem hver segir, ríkissjóði ákaflega hagstætt. Það endar þannig að ríkið leggur fram í beinu hlutafé tæpa 135 milljarða kr. sem verða vaxtaberandi og markaðshæf skuldabréf sem mynda eiginfjárþátt ríkisins í bönkunum, 81% í Landsbankanum og 13% og 5% í hinum tilvikunum.

Þetta er með öðrum orðum 250 milljörðum kr. lægri fjárhæð en reiknað var með og heimildir voru teknar inn í lög í fyrra og það munar um minna en ef niðurstaðan hefði orðið 385 milljarðar á skuldabréfum með fullum vöxtum. Þó að víkjandi lán sem veitt eru til stuðnings Arion banka og Íslandsbanka séu tekin með er upphæðin samt undir 200 milljörðum. Af víkjandi lánunum fær ríkið vexti í staðinn fyrir að það væri öfugt ef um eiginfjárframlag væri að ræða, þannig að útkoman að þessu leyti er til svo mikilla muna hagstæðari en stefnt gat í að það kemur fram í tugmilljarða lægri vaxtakostnaði fyrir ríkið á þessu ári og hinum næstu. Þetta hlýtur að vera ánægjuefni fyrir okkur sem erum að ræða á Alþingi þessa dagana erfiðar ráðstafanir, bæði á sviði niðurskurðar og tekjuöflunar til að brúa bilið í afkomu ríkissjóðs. Með öðrum orðum lít ég svo á málin, og hryggi þar með þá ræðumenn sem hafa skemmt sér við að tala um einkavæðingu bankanna, að engin slík hefur átt sér stað, það hefur engin sala á neinu sem var orðin eign átt sér stað og þar af leiðandi engin einkavæðing. Það er einfaldlega að ráðast hver er til frambúðar, til næstu ára eigandi þessara fjármálastofnana. Út úr því kemur blanda sem ég tel að sé að mörgu leyti góð, að ríkið er yfirgnæfandi meirihlutaeigandi og kjölfestueigandi í langstærsta bankanum, eða þeim bankanum sem er stærstur, svo nokkuð miklu munar og á nokkurn eignarhlut í hinum, auk þess sem samningarnir tryggja hvort eða er eitt stjórnarsæti í hvorum banka um sig, Arion banka og Íslandsbanka.

Hverjir eru þá þeir eigendur sem ríkið á þarna á móti? Jú, það eru íslenskir lögaðilar. Það verður í fyrsta lagi eignarhaldsfélag, íslenskur lögaðili í eigu skilanefndar gömlu bankanna sem aftur eru íslenskir lögaðilar. Á bak við það standa kröfuhafar í búin eins og þeir eru eða verða á hverjum tíma. Hvað er vitað um hverjir þeir eru? Jú, í hópnum eru stórir erlendir bankar. Það eru fjárfestar, það eru sjóðir og það eru innlendir kröfuhafar. Það er því um að ræða nokkuð breiðan og blandaðan hóp eigenda það best er vitað. En nú er það auðvitað svo að sumar þessar kröfur hafa gengið kaupum og sölum og verið vaxandi og líflegur eftirmarkaður með þær, m.a. vegna þess að menn gera sér talsverðar vonir um að í bönkunum séu dulin verðmæti umfram það sem ríkið var tilbúið til að fallast á í uppgjörinu. Það mun framtíðin leiða í ljós og vonandi vegnar bönkunum vel og þeir verði frekar verðmætari en hitt, það hljótum við gjarnan að kjósa, því það er fyrst og fremst ávísun á að betur gengur í íslensku efnahagslífi og hagkerfi en ella væri. Töpin verða minni og minni verðmæti fara forgörðum og það er auðvitað líka mikilvægt.

Ég hafði áform um að leggja fyrir Alþingi, eins og ég hygg að ég hafi áður upplýst hér, skýrslu um þá miklu vinnu sem átt hefur sér stað við endurreisn bankakerfisins og fjármálastofnana. Það var niðurstaða okkar þegar leið á októbermánuð að það væri ekki góður tími til að fara þá inn með skýrslu vegna þess að mál voru þá í lokaferli og -vinnslu, en ég hygg að fljótlega upp úr áramótum verði sá tími kominn að við getum gefið Alþingi nokkuð tæmandi skýrslu um hvernig þeirri vinnu var háttað og dregið upp mynd af þeim niðurstöðum sem hún hefur skilað með því að þessu verður öllu lokið með stóru bankana þrjá og vonandi líka farsælli endurreisn sparisjóða sem eru á lokaskrefi að klára, sem og hafa mál nokkurra minni fjármálastofnana einnig verið þarna undir. Þá verður hægt að reiða fram upplýsingar og gögn um þetta. Þetta hefur verið stór, viðamikil og dýr aðgerð, vissulega, en það eru líka gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir Ísland, fyrir atvinnulífið og hagkerfið að þetta gangi vel. Mjög miklu skiptir að bankarnir leggi af stað sterkt fjármagnaðir með 16% samtals eiginfjárhlutfall í a- og b-þætti, þar af 12% eigið fé í a-flokki og samtals 16%. Þeir eru því í góðum færum til þess að takast á við verkefni sín, styðja skuldsett rekstrarfélög, fyrirtæki og almenning og vinna úr skuldamálum þeirra sem er auðvitað afar brýnt og stórt verkefni sem yfir stendur og við blasir á næstu mánuðum og missirum.

Ég get tekið undir það sem hér var rætt um að þörf er á því síðan að farið verði í gegnum alla löggjöf og allt starfsumhverfi fjármálafyrirtækjanna. Sú vinna er öll á fullri ferð og sumt af henni komið þegar inn á Alþingi í formi frumvarpa, þar á meðal það ég best veit nýtt frumvarp um fjármálafyrirtæki þar sem settar eru ýmsar skorður og tekið á ýmsum þáttum sem úrskeiðis fóru í aðdraganda hrunsins, þar á meðal hlutum eins og krosseignatengslum og því að menn láni eigendum sínum eða tengdum aðilum. Settar eru skorður við óhóflegum kaupaukum, mönnum gert að upplýsa um allt slíkt á aðalfundum og í ársreikningum og ýmsar fleiri skorður þarna settar.

Sjálfur hefði ég persónulega ekkert á móti því að ganga lengra í að knýja fram enn frekari aðgreiningu viðskiptabanka og fjárfestingarbankastarfsemi. Þau sjónarmið hef ég haft uppi mörg undanfarin ár og flutt ótal sinnum frumvarp á Alþingi, oft með hv. þm. Ögmundi Jónassyni, um nákvæmlega það mál að aðgreina þarna betur, því að öllum mátti ljóst vera sem skoðuðu framvinduna í bankakerfinu upp úr einkavæðingunni 2002 að það stefndi í hreint óefni því að meginþáttur í starfsemi bankanna varð ekki lengur viðskiptabankaþjónusta heldur fjárfestingarstarfsemi eða brask. Menn drógu innlán og þjónustu við almenna viðskiptavini inn undir í áhættunni sem þar var tekin. Eftir því sem evrópskar reglur og staða okkar frekast leyfir tel ég að við eigum að setja þessu skorður og kunna nú fótum okkar forráð.

Sem betur fer er það svo að hér er fyrst og fremst verið að setja á fót bankakerfi sem er til að þjónusta innlenda hagkerfið, íslenska raunhagkerfið, atvinnulíf og heimili, og er auðvitað í miklu og margfalt betri takti við hagstærðir okkar. Efnahagsreikningar bankanna upp á tæpa 2.500 milljarða eða hvað það nú er, eru auðvitað miklu nær hagstærðum okkar en þau ósköp sem fyrir voru. Þó að vissulega séu þau sjónarmið uppi að áfram þurfi að vinna að hagræðingu í fjármálakerfinu er ólíku saman að jafna í stærðum frá því sem áður var. Örugglega mun slík endurskipulagning og hagræðing finna sér farveg á komandi árum.

Nú er það svo að þau mál heyra undir hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra en ekki fjármálaráðherra. Hlutverki mínu er meira og minna að ljúka í þessum efnum sem hefur verið að bera pólitíska ábyrgð á samningagerðinni og fara síðan þá með eignarhlutinn í þeim hluta bankakerfisins eða fjármálastofnana sem verður í eigu ríkisins, sem verða fyrst og fremst ráðandi hlutir í Landsbankanum, lítils háttar eignarhlutur í Arion banka og Íslandsbanka og eftir atvikum stofnfjárhlutir í sparisjóðum. Búið er að búa um það allt saman í traustum farvegi þar sem er Bankasýsla ríkisins, koma því armslengd frá stjórnmálunum og tryggja faglega, vandaða og gagnsæja stjórnsýslu í þeim efnum sem ég vona að reynist vel.

Ég tel að í öllum aðalatriðum getum við verið mjög sátt við það hvernig til er að takast og að niðurstaðan sé okkur hagfelld. Ég hef ekki ástæðu til að hafa þær áhyggjur sem sumir hafa af þeirri óvissu sem uppi er tímabundið með hverjir reynist að endingu kröfuhafar gömlu bankanna. Það verður einfaldlega þannig að Fjármálaeftirlitið tekur það allt út og metur að eigendur banka séu traustir og það sem kallað er „fit and proper“ og öðruvísi fái þeir ekki sín starfsleyfi, öðruvísi er það ekki samþykkt sem þarf að samþykkja til að bankinn geti hafið starfsemi. Það gildir líka um þá sem veljast til setu í bankaráðum o.s.frv.

Von okkar er sú að í eigendahópnum verði til frambúðar a.m.k. einhverjir stórir bankar og að frá þeim komi gjarnan fulltrúar inn í stjórnir bankanna sem traustra fagaðila og eigenda. Það væri ákaflega æskilegt. Hvernig síðan eignarhlutir breytast í baklandinu á komandi árum, hvort þessir bankar verði skráðir á markað og nýir eigendur geti þannig komið inn o.s.frv., því verður auðvitað framtíðin að svara. Aðalatriðið er: Þetta eru íslenskir bankar í eigu íslenskra aðila undir íslenskum lögum og íslensku eftirliti, háðir öllum þeim reglum sem um það gilda þannig að ég held að þar með eigi að vera sæmilega vel fyrir því séð (Forseti hringir.) að ekki sé ástæða til að missa mikinn svefn yfir þeim þætti málsins.