138. löggjafarþing — 59. fundur,  22. des. 2009.

fjárlög 2010.

1. mál
[09:31]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Mig langar undir þessum lið til að þakka fjárlaganefnd fyrir þá vinnu sem hún hefur lagt í þetta mál. Hér er verið að leiðrétta halla sem verið hefur á þessum skóla um langa hríð og mig langar að þakka fjárlaganefndinni fyrir að hafa tekið á þessu. Það er mjög mikilvægt að láta ekki þessar stofnanir búa við slíkt lengi og er ástæða til að þakka þegar vel er gert. Ég þakka m.a. hv. þm. Ásmundi Einari Daðasyni fyrir að standa með þessu.