ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Það er fjölmargt í ræðu hv. þingmanns sem gott væri og gaman að staldra við en ég verð að einskorða mig við a.m.k. tvö atriði. Hann bendir á að valkostur sé að fara með málið fyrir dómstóla, en áttar hv. þingmaður sig á því hvaða hagsmuni við erum þar að tala um? Það kom fram í álitsgerðum beggja bresku lögmannsstofanna fyrir fjárlaganefnd að höfnun frumvarpsins mun að öllum líkindum leiða til þess að bresk og hollensk stjórnvöld munu reyna að fá ýtrustu kröfum framgengt fyrir dómstólum. Að mati þeirra beggja er óvíst hver úrslit slíks máls yrðu, en yrði niðurstaðan íslenska ríkinu óhagstæð yrðu greiðsluskilmálar væntanlega mun óhagstæðari en kveðið er á um í fyrirliggjandi samningum. Við skulum hafa það á hreinu að Íslendingar eru að taka á sig að einungis 20.000 evru lágmarkstryggingu. Ef við töpum málinu fyrir dómstólum eigum við það á hættu að íslenska ríkið þurfi að greiða 600–700 milljarða til viðbótar því að breska og hollenska ríkið eru að leggja þá fjármuni út. Þeir eru líka að borga hluta af Icesave-skuldinni. Við eigum það að sjálfsögðu á hættu að þeir muni sækja það fyrir dómstólum ef við ætlum að láta málið fara þá leið.