ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég verð að lýsa því yfir að ég hef sjaldan eða aldrei verið eins hjartanlega ósammála nokkurri ræðu og þeirri sem hv. þm. Björn Valur Gíslason flutti. Þó er eitt atriði sem ég vil hrósa honum fyrir og það er að hann staðfesti í ræðu sinni að fyrirvararnir hafi engu breytt, þeir séu marklausir og í rauninni sé verið að samþykkja sömu samninga og fjármálaráðherra lagði fyrir Alþingi í byrjun júnímánaðar með því fororði að þetta væru glæsilegir samningar.
Ég vil líka hrósa honum fyrir að leggja sjálfur sjálfstætt mat á þær lögfræðilegu pælingar sem eru í þessu vegna þess að hann heldur því fram án þess að vísa í sérfræðinga að þetta séu skýrir og góðir samningar. Það finnst mér ansi sérstakt. Svo reiknar hann sjálfur út og segir að hvergi sé hægt að fá betri kjör þrátt fyrir að nú liggi fyrir álit frá IFS sem segir að kjörin séu einmitt skelfileg. Reyndar er það í takt við mörg önnur álit sem benda á að Bretar og Hollendingar séu jafnvel að græða á þeim kjörum sem þeir veita Íslendingum vegna þess að þeir geta tekið annað lán. Hefur þingmaðurinn kynnt sér álit IFS og telur hann að það sé mark á því takandi?