ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég ætla að hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson hafi einhvern tíma tekið lán á lífsleið sinni. Hann getur væntanlega ekki svarað fyrir þau lán sem hann tekur í upphafi hver niðurstaðan verður á endanum, það veltur á ýmsum hlutum. Að sjálfsögðu veltur það á gengi krónunnar, á breytilegum vöxtum ef út í það er farið, þannig að (Gripið fram í.) hann getur ekki svarað fyrir lán sín frekar en þessi lán. Auðvitað er ýmis óvissa tengd endurkomu á eignum Landsbankans inn í þetta mál, það liggur alveg ljóst fyrir. (Gripið fram í.)
Hvað Jón Sigurðsson varðar ber ég enga ábyrgð á þeim manni. Ég þekki hann ekki. Það er Bankasýsla ríkisins væntanlega sem kemur honum í þetta embætti ef af verður hjá Íslandsbanka. Ég get því ekki séð hvernig ég eigi að geta svarað fyrir þær gjörðir. (Gripið fram í.) Aðalatriðið er að það þarf að vanda sig við endurreisn landsins og þar vil ég ekki byggja á verkum fyrri valdaflokka, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, sem komu þjóðarauðnum í fárra eigu, (Forseti hringir.) klíku manna sem eyðilögðu þessa banka eins og frægt er. (Gripið fram í.)