138. löggjafarþing — 64. fundur,  29. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[12:17]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Guðbjartur Hannesson) (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Maður hefur orðið að búa við það í Icesave-málinu allt frá upphafi að orð manns séu rangtúlkuð og farið með þau á afar frjálslegan hátt. Mig langar í tilefni af þeirri ræðu sem hér var flutt að upplýsa hv. þingmann um að það sem ég talaði um að hefði gerst þegar við gerðum þá skýlausu kröfu að Bretar og Hollendingar staðfestu fyrirvarana formlega, voru ekki formleg samskipti stjórnvalda heldur viðræður í fjárlaganefnd og á göngunum þegar við vorum að ganga frá þessu máli. Þegar menn óskuðu eftir að þessu yrði bætt við varaði ég við að það yrði gert, ásamt fleirum, í óformlegum viðræðum. Við mátum síðan stöðuna þannig að til að halda samstöðunni væri það áhættunnar virði að láta reyna á þetta.

Þau ráð sem ég fékk voru persónuleg og frá fólki sem ég treysti afar vel og hafa ekkert með stjórnvöld að gera. Þetta voru aðilar sem þekktu mjög vel til alþjóðasamninga og bentu mér vinsamlega á að nú hefði ég farið yfir mörkin vegna þess að í alþjóðlegum samningum gætu menn látið ýmislegt ganga yfir sig ef ekki væri gengið frá þeim með mjög formlegum hætti, en ef það ætti að staðfestast skriflega eins og óskað var eftir væri hætt við því að menn yrðu að segja nei vegna fordæmanna fyrir aðra samninga.

Ég tel mikilvægt að þessi orð mín séu ekki afvegaleidd eða mistúlkuð þannig að hér hafi átt sér stað einhver formleg samskipti stjórnvalda. Þetta voru viðræður í fjárlaganefnd og í tengslum við afgreiðslu málsins annars vegar og hins vegar persónuleg ráð sem ég fékk frá mönnum sem ég treysti afar vel um það hvernig ég ætti að haga mínu máli. Niðurstaðan varð sú að við afgreiddum þetta með þessum hætti. Ég stóð að því og treysti á að við gætum unnið þessu máli farsælan endi. Það tókst því miður ekki og ég harma það manna mest. Ég vil bara að þetta sé skýrt hér og leiðrétt, þannig að ekki sé verið að afbaka það sem ég sagði.