ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
Hæstv. forseti. Nú líður senn að lokum 3. umr. um þetta stærsta mál Íslandssögunnar, Icesave-málið. Það er með hálfgerðum trega sem ég kem hér upp í mína síðustu ræðu vegna þess að ég vildi hafa sagt svo margt meira. Þetta mál er allt saman, að því er mér virðist, á misskilningi byggt af hálfu þeirra flokka sem hér stjórna. Forsendur ákvörðunar ríkisstjórnarflokkanna eru brostnar. Hæstv. fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon sagði það í ræðu sinni þegar þetta mál var flutt að hendur ríkisstjórnarflokkanna hafi verið bundnar vegna þeirra yfirlýsinga sem fyrri ríkisstjórn gaf Hollendingum með minnisblaði sem undirritað var 14. nóvember, þess vegna sé þetta mál búið með þeim hætti sem raun ber vitni.
Þetta hefur verið hrakið, bæði af fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem lagði fram ítarlegt minnisblað um það hvernig málinu vatt fram í stjórnartíð hennar. Þar kom fram að þegar Brussel-viðmiðin svokölluðu voru undirrituð, sem var diplómatískt samkomulag, hafi samkomulagið við Hollendingana verið úr sögunni. Þar með er ljóst að þessi forsenda ríkisstjórnarflokkanna er brostin. Það er hálfsorglegt til þess að vita að hæstv. núverandi fjármálaráðherra hafi ekki kynnt sér betur með hvernig fyrrverandi ráðamenn þjóðarinnar litu á þetta mál og í hvaða stöðu málið var komið þegar núverandi ríkisstjórnarflokkar tóku við stjórnartaumunum.
Álit bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya kemur jafnframt inn á þennan sama punkt, að það var ekkert sem lá í spilunum um að þessi yfirlýsing við Hollendingana hefði bundið hendur íslenskra stjórnvalda.
Steingrímur J. Sigfússon, sem nú er hæstv. fjármálaráðherra, var áður í stjórnarandstöðu. Hann lýsti því yfir úr þessum ræðustól að ekki skyldi gengið frá þessu máli eins og síðar átti að gera þegar sami maður var kominn í ríkisstjórn. Þetta er sorglegt, frú forseti.
Margt hefur verið sagt í þessum ræðustól um þetta mál og mörg stór og þung orð látin falla. Það hefur verið margsagt hér af forsvarsmönnum ríkisstjórnarflokkanna að öll gögn séu komin fram í málinu. Það hefur verið sagt margoft. Virðulegur varaformaður fjárlaganefndar, hv. þm. Björn V. Gíslason, sagði það síðast í gær að öll gögn væru komin fram í málinu. Korteri seinna var landsmönnum öllum ljóst að svo var ekki. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í gær að öll gögn væru komin fram. Hann fullyrti jafnframt að sagan mundi dæma okkur sem sitjum og höfum setið á þingi og að menn yrðu að geta staðið við sín orð. Hvernig heldur hæstv. forseti að sagan muni dæma þá sem láta okkur, þingmenn þjóðarinnar, taka ákvörðun án þess að ná að kynna okkur þau gögn sem hafa streymt hér inn í þingið í dag? Þetta er alvarlegur hlutur, frú forseti, en á þessu bera ríkisstjórnarflokkarnir alla ábyrgð og ég skil ekki, frú forseti, hvers vegna þeir ágætu þingmenn sem sitja (Forseti hringir.) í stjórnarliðinu velja sér …
(Forseti (ÁÞS): Forseti biður þingmenn að ávarpa forseta með viðeigandi hætti.)
Hæstv. forseti, ég óska þá eftir að það verði bætt við ræðutíma minn, þar sem þessi athugasemd tekur af þeim stutta ræðutíma sem ég hef.
En það hefur litað þetta mál allan tímann, allt frá upphafi, að upplýsingum hefur verið haldið frá okkur. Allt frá því að þetta mál kom inn í þingið fyrst í sumar áttum við þingmenn þjóðarinnar og þjóðin öll ekki að fá að sjá sjálfa samningana. Ég man eftir að hafa staðið hér í þessum ræðustól og verið algjörlega ofboðið vegna þessa. Og enn þann dag í dag, mörgum mánuðum seinna, líður mér þannig að ég muni ekki að fá að kynna mér málsgögnin til hlítar. Hvað liggur svona á, herra forseti? Mér fyrirmunað að skilja hvers vegna ríkisstjórnarflokkarnir velja sér að halda svona á málum.
Ábyrgðin á þessum málatilbúnaði öllum er á herðum Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Frá því geta menn ekki hlaupist með því að benda sífellt á að hendur þeirra hafi verið bundnar af ákvörðun fyrri ríkisstjórnar. Það hefur verið hrakið, bæði með rökum bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya og með orðum hæstv. fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Það er alvarlegur hlutur, herra forseti. Á því verða menn að bera ábyrgð og menn verða að kannast við sína ábyrgð.