138. löggjafarþing — 65. fundur,  30. des. 2009.

ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

76. mál
[22:26]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Frá upphafi þessa máls hefur staða þjóðarinnar hríðversnað, um það eru allir sammála. Við deildum um það í sumar hvort skuldastaðan af vergri þjóðarframleiðslu væri komin yfir 240% vegna þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði lýst því yfir að þá væru þjóðir í raun gjaldþrota. Nýjustu upplýsingar frá Seðlabanka Íslands segja að skuldastaða þjóðarinnar sé núna 320%. Það sorglega við þetta allt saman er að meiri hlutinn hélt því fram í haust að það væri nægilegt að vera með þennan fyrirvara inni í álitinu, hann er þar meira að segja. Ef það væri rétt sem þeir sögðu þá væri ríkisábyrgðin í rauninni fallin.

Það skiptir engu máli hvað meiri hlutinn hefur sagt, (Forseti hringir.) hann snýst við á einu augabragði. Ég segi já við þessari breytingartillögu.