þingfrestun.
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 138. löggjafarþings, frá 8. janúar 2010 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 29. janúar 2010.
Gjört á Bessastöðum, 8. janúar 2010.
Ólafur Ragnar Grímsson.
__________________
Jóhanna Sigurðardóttir.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 138. löggjafarþings, er frestað.
Leyfi ég mér að þakka hv. alþingismönnum fyrir gott samstarf og samkomulag við umfjöllun og afgreiðslu á lagafrumvarpi um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga, nr. 1/2010, sem Alþingi samþykkti en forseti synjaði staðfestingar. Það verið hefur eina umfjöllunarefni Alþingis á framhaldsfundi þess í dag.
Starfsmönnum þingsins þakka ég fyrir vel unnin störf nú sem fyrr.